Hrafnista
Hrafnista
Hrafnista

Sjúkraliði - Nesvellir í Reykjanesbæ

Hrafnista Nesvellir óskar eftir að ráða samviskusaman, hlýjan og skipulagðan sjúkraliða til starfa. Um 70-100% starf er að ræða. Við leitum að aðila sem getur tekið allar tegundir vakta og er tilbúin að taka að sér vaktstjórn.

Ef þú vilt vinna á vinnustað þar sem áherslur eru m.a. öflugur mannauður, framúrskarandi samskipti, þróun á þjónustu og þar sem nýting og þróun á þjónustueflandi verkfærum eru í brennidepli þá viljum við endilega heyra frá þér.

Athugið að unnið verður úr umsóknum um leið og þær berast.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Almenn sjúkraliðastörf
  • Verkstjórn deildar
  • Teymisvinna
  • Umsjón með umönnun íbúa
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Starfsleyfi sjúkraliða
  • Þekking á RAI kerfinu kostur
  • Góðir samskiptahæfileikar og jákvætt viðmót
  • Sveigjanleiki og sjálfstæð vinnubrögð
  • Frumkvæði og metnaður í starfi
Fríðindi í starfi
  • Heilsuræktarstyrkur
  • Samgöngustyrkur með strætó
  • Stuðningur til framþróunar í formi leyfa á launum og námstyrkja
  • Við bjóðum upp á jákvæðan og skemmtilegan starfsanda, áhugaverð verkefni og starf sem er í sífelldri þróun.
Advertisement published24. November 2026
Application deadline9. December 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Njarðarvellir 2, 260 Reykjanesbær
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Paramedic
Professions
Job Tags