Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS)
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS)
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS)

Sjúkraliðar og sjúkraliðanemar á slysa- og bráðadeild

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar eftir að ráða sjúkraliða/nema í sumarafleysingar á slysa- og bráðadeild. Um er að ræða vaktavinnu með möguleika á framlengingu.

Leitað er eftir áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingum sem geta unnið sjálfstætt. Á HSS er lögð áhersla á góða samvinnu, stuttar boðleiðir og góðan starfsanda.

Helstu verkefni og ábyrgð

Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf. Sjúkraliðar/nemar sinna umönnun skjólstæðinga og öðrum störfum undir stjórn og í samvinnu við hjúkrunarfræðinga. Þeir starfa samkvæmt lögum og reglugerðum um heilbrigðisstarfsmenn og markmiðum deildarinnar.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Starfsleyfi sjúkraliða eða vera í sjúkraliðanámi
  • Faglegur metnaður og vandvirkni
  • Framúrskarandi samskiptahæfni
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Hlýtt og jákvætt viðmót
  • Starfsreynsla er æskileg
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
Advertisement published28. May 2026
Application deadline8. June 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Skólavegur 6, 230 Reykjanesbær
Type of work
Professions
Job Tags