Reykjalundur
Reykjalundur
Reykjalundur

Sjúkraliði - komdu til liðs við okkur á Reykjalundi

Langar þig til að starfa í fjölbreyttu fagumhverfi þar sem þú færð tækifæri til að hafa áhrif á heilsu, færni og lífsgæði einstaklinga ?

Reykjalundur leitar að áhugasömum sjúkraliða í 80-100% starf á hjúkrunardeild.

Á Reykjalundi starfar öflugur hópur fagfólks sem vinnur saman að því að efla heilsu, færni og sjálfstæði einstaklinga í þverfaglegri endurhæfingu. Við leggjum áherslu á einstaklingsmiðaða þjónustu, heildræna nálgun og öflugt þverfaglegt samstarf. Á hjúkrunardeildinni eru 17 legurými.

Við bjóðum upp á:

  • Fjölbreytt og gefandi starf í faglegu starfsumhverfi.
  • Samstarf í öflugu þverfaglegu teymi.
  • Áherslu á góðan starfsanda og jákvæð samskipti.
  • Aðgang að heilsurækt, starfsmannaleikfimi og sundlaug á vinnustaðnum.
  • Mötuneyti er á staðnum.
  • Sveigjanleika í starfshlutfalli.

Við leitum að þér sem:

  • Hefur gilt íslenskt starfsleyfi frá Embætti landlæknis.
  • Hefur áhuga á þverfaglegri teymisvinnu og góðu samstarfi.
  • Ert jákvæð/ur, lipur í samskiptum og sýnir öðrum virðingu.
  • Sýnir frumkvæði, áhuga og metnað í starfi.
  • Hefur áhuga á að taka þátt í að efla þjónustu og starfsemi deildarinnar.

Laun greiðast samkvæmt gildandi kjarasamningi Sjúkraliðafélags Íslands og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu, auk gildandi stofnanasamnings Sjúkraliðafélags Íslands og SFV.

Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilsskrá ásamt afriti af prófskírteinum, starfsleyfi og sakavottorði.

Nánari upplýsingar um starfið veita:

Erna Bjargey Jóhannsdóttir, sviðsstjóri hjúkrunar - [email protected] og Guðbjörg Gunnarsdóttir mannauðsstjóri - [email protected]

Öllum umsóknum er svarað.

Upplýsingar um Reykjalund er að finna á www.reykjalundur.is

Advertisement published23. November 2026
Application deadline7. December 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Reykjalundur 125400, 270 Mosfellsbær
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.HonestyPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Ambition
Work environment
Professions
Job Tags