
Kópavogsskóli
Kópavogsskóli er hverfisskóli miðbæjar Kópavogs og stendur við Digranesveg 15. Í skólanum eru um 400 flottir nemendur og þeim hefur fjölgað jafnt og þétt undanfarin ár. Skólinn er fjölþjóðlegur en rúmlega 20% nemenda eru af erlendum uppruna.
Allt starf Kópavogsskóla mótast af uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar. Að auki vinna yngstu bekkir skólans með vináttuverkefni Barnaheilla og bangsann Blæ.Í skólareglunum er lögð áhersla á þann skólabrag sem leitast er við að skapa
Í Kópavogsskóla er lögð áhersla á að allir:
• komi fram af tillitssemi og kurteisi
• virði vinnu annarra
• sinni hlutverki sínu af kostgæfni
• leggi áherslu á heilbrigða lífsýn

Sérkennari á unglingastig óskast í Kópavogsskóla
Kópavogsskóli óskar eftir að ráða sérkennara.
Kópavogsskóli er heildstæður grunnskóli í Kópavogi. Í skólanum eru 420 frábærir nemendur og 75 kraftmiklir starfsmenn. Í Kópavogsskóla vinnum við eftir Uppeldi til ábyrðar.
Kópavogsskóli auglýsir eftir metnaðarfullum, sveigjanlegum og áhugasömum sérkennara á unglingastigi. Starfið felur í sér sérkennslu í íslensku og stærðfræði í 7. - 10. bekk. Ráðið er í starfið frá og með 1. ágúst 2026.
Starfið er til eins árs með möguleika á framlengingu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Kennsla í íslensku og stærðfræði
- Skipulagning og aðlögun náms að þörfum nemenda
- Stuðningur við nemendur í daglegu skólastarfi í samstarfi við umsjónarkennara og fagteymi
- Samvinna við foreldra og aðra fagaðila
- Virk þátttaka í faglegu samstarfi og skólaþróun
Menntunar- og hæfniskröfur
- Kennaramenntun og leyfisbréf kennara
- Menntun eða reynsla í kennslu íslensku og stærðfræði
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum, þolinmæði og skilningur á fjölbreyttum þörfum nemenda
- Skipulögð vinnubrögð, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Reynsla af vinnu með nemendum með fjölbreyttan bakgrunn
- Góð íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi
- Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins
- Starf í fjölbreyttu og styðjandi skólasamfélagi
- Tækifæri til að hafa jákvæð áhrif á náms- og félagslega stöðu nemenda
- Faglegan stuðning og möguleika á símenntun
Advertisement published9. June 2026
Application deadline23. June 2026
Language skills
ÍslenskaRequired
Location
Digranesvegur 15, 200 Kópavogur
Type of work
Skills
Teacher
Professions
Job Tags
Other jobs (3)
Similar jobs (12)

Sérfræðingur með sértæka ábyrgð á frístundaheimilinu Hóla við Sunnulækjarskóla á Selfossi
Frístundaþjónusta í Árborg

Leikskólinn Hjalli óskar eftir leikskólakennurum
Hjallastefnan

Kennarastaða við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar

Valhúsaskóli - íslenskukennari á unglingastigi
Seltjarnarnesbær

Flækjumeistari óskast
Lindaskóli

Umsjónarkennari óskast til starfa í 4. bekk í Lindaskóla
Lindaskóli

Umsjónarkennari í Varmárskóla
Varmárskóli

Sérkennlustjóri
Leikskólinn Krakkaborg

Velferðarsvið - Ráðgjafi
Reykjanesbær

Kennsluráðgjafi á grunnskólastigi
Félags- og skólaþjónusta Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu

Kennari í stærðfræði og fleiri greinum frá 1. ágúst 2026
Fellaskóli

Kennari óskast fyrir nemendur með annað móðurmál
Kópavogsskóli