Landsbankinn
Landsbankinn
Landsbankinn

Sérfræðingur í upplýsingaöryggi

Við leitum að öflugum sérfræðingi í upplýsingaöryggi til að ganga til liðs við hóp sérfræðinga í rekstraráhættudeild á sviði áhættustýringar. Viðkomandi mun taka þátt í vinnu tengdri stjórnkerfi upplýsingaöryggis í bankanum ásamt almennri rekstraráhættu.

Landsbankinn leggur mikla áherslu á upplýsingaöryggi í starfsemi sinni og er vottaður samkvæmt ISO 27001.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þátttaka í mótun stefnu í upplýsingaöryggismálum og eftirlit með framkvæmd hennar
  • Umsjón og viðhald á stjórnkerfi upplýsingaöryggis og ISO 27001 vottunar
  • Fylgjast með ytra regluverki sem snýr að upplýsingaöryggi og stuðla að því að bankinn starfi í samræmi við það
  • Veita stjórnendum og starfsmönnum ráðgjöf um framkvæmd upplýsingaöryggismála
  • Þátttaka í greiningu og ráðgjöf vegna rekstraráhættu
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði upplýsingatækni, tölvunarfræði, viðskiptafræði eða tengdra greina
  • Reynsla af upplýsingaöryggismálum og/eða öðrum stjórnkerfum (t.d. ISO 27001, ISO 9001 eða sambærilegum)
  • Þekking á lögum og reglum sem varða net- og upplýsingaöryggi (t.d. DORA) er kostur
  • Þekking á umgjörð gæðamála í upplýsingatækni er kostur
  • Skipulagshæfni, sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og reynsla af teymisvinnu
  • Gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti
  • Þekking á fjármálamarkaði og starfsemi fjármálafyrirtækja er kostur
Advertisement published2. June 2025
Application deadline18. June 2025
Language skills
EnglishEnglish
Required
Very good
IcelandicIcelandic
Required
Very good
Location
Reykjastræti 6
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Computer scientistPathCreated with Sketch.Quality tracking systemsPathCreated with Sketch.EngineerPathCreated with Sketch.Business administrator
Professions
Job Tags