Marvakt ehf.
Marvakt ehf.
Marvakt ehf.

Sérfræðingur í umhverfisvöktun

Vilt þú taka þátt í að byggja upp nýtt og spennandi fyrirtæki á sviði umhverfisrannsókna?

Marvakt ehf. er nýstofnað félag sem sérhæfir sig í umhverfisvöktun. Starfsemin snýr að stærstum hluta að vöktun í sjó, en tekur einnig að sér fjölbreytt verkefni á landi. Leitað er að drífandi starfsmanni í 50% starfshlutfall til að byrja með, með ríka möguleika á að starfið þróist í fullt starf í framtíðinni.

Starfsstöð og vettvangur:
Aðalstarfsstöð fyrirtækisins er á Akranesi. Vettvangsvinna fer fram um allt land, og því er möguleiki á að semja um aðra starfsstöð eða fyrirkomulag fyrir rétta manneskju.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Gagnaöflun, sýnataka og umhverfisvöktun í sjó og á landi.
  • Úrvinnsla gagna, greining og skýrslugerð.
  • Þátttaka í þróun nýrra vöktunarverkefna.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun í náttúrufræði, líffræði eða skyldum greinum sem nýtist í starfi.
  • Framúrskarandi hæfni til að tjá sig í máli og riti á íslensku er skilyrði.
  • Góð enskukunnátta er skilyrði.
  • Ökuréttindi eru skilyrði.
  • Kunnátta í einu norðurlandamáli er mikill kostur.
  • Reynsla af vettvangsvinnu og sjóvinnu er kostur (starfið hentar ekki þeim sem þjást af mikilli sjóveiki).
  • Nákvæmni og sjálfstæði í vinnubrögðum og hæfni í mannlegum samskiptum.
Fríðindi í starfi
  • Fjölbreytt og krefjandi verkefni á vettvangi og á skrifstofu.
  • Tækifæri til að móta eigið starf og vaxa með nýju fyrirtæki.
  • Sveigjanleika í starfi.
Advertisement published24. August 2026
Application deadline18. September 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Bárugata 8-10 8R, 300 Akranes
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Driver's license (B)PathCreated with Sketch.General computer knowledgePathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.HonestyPathCreated with Sketch.Physical fitnessPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Microsoft ExcelPathCreated with Sketch.Microsoft WordPathCreated with Sketch.PrecisionPathCreated with Sketch.Driver's licencePathCreated with Sketch.ResearchPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.Report writingPathCreated with Sketch.Content writingPathCreated with Sketch.Research data analysisPathCreated with Sketch.Windows
Suitable for
Work environment
Professions
Job Tags