
Náttúruverndarstofnun
Náttúruverndarstofnun tók til starfa þann 1. janúar 2025 og tekur stofnunin við starfsemi Vatnajökulsþjóðgarðs og þeim hluta Umhverfisstofnunar er lýtur að náttúruvernd og lífríkis- og veiðistjórnun. Stofnunin fer með stjórnsýslu, eftirlit og önnur verkefni á sviði náttúruverndar og sjálfbærrar þróunar og friðlýstra svæða, vernd villtra fugla og spendýra og veiðistjórnunar. Þá sinnir stofnunin samhæfingu í skipulagi svæðisbundinnar stjórnunar og verndar og eftirliti á ofangreindum sviðum.
Sérfræðingur í þjónustu og miðlun
Náttúruverndarstofnun óskar eftir að ráða jákvæðan og þjónustulundaðan einstakling til að hafa umsjón með þjónustu við gesti Vatnajökulsþjóðgarðs sem heimsækja Snæfellsstofu á Skriðuklaustri. Starfið er fjölbreytt og áhugavert og felst meðal annars í umsjón með daglegum rekstri Snæfellsstofu, fræðslu, miðlun og móttöku gesta.
Sérfræðingurinn heyrir beint undir þjóðgarðsvörð austursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs og hefur starfsaðstöðu í Snæfellsstofu og á Egilsstöðum. Um áhugavert heilsársstarf er að ræða.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Daglegur rekstur og umsjón Snæfellsstofu
- Umsjón með minjagripasölu og uppgjöri
- Þjálfun og dagleg umsjón með starfsfólki í Snæfellsstofu
- Móttaka gesta og viðburðastjórnun
- Samskipti við hagsmunaaðila
- Gerð og miðlun fræðslu- og upplýsingaefnis og samstarf þvert á stofnunina
- Umsjón fræðslusýningar
- Umsjón með samfélagsmiðlum og markaðsetningu Snæfellsstofu og austursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs
- Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla eða þekking á fræðslu-, margmiðlunar- og/eða markaðsmálum er kostur
- Jákvæðni og lausnamiðuð hugsun
- Góð samskiptafærni og þjónustulund
- Gott skipulag og geta til að fylgja málum eftir
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Reynsla af landvörslu er kostur
- Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
- Þekking, reynsla og áhugi á umhverfismálum, náttúrufræði og útivist er kostur
- Góð staðþekking er kostur
Advertisement published8. April 2026
Application deadline21. April 2026
Language skills
EnglishRequired
IcelandicRequired
Location
Skriðuklaustur , 701 Egilsstaðir
Type of work
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Framkvæmdastjóri LungA-skólans á Seyðisfirði
LungA-skólinn ses

Sumarstarf - Fulltrúi í Þjónustumiðstöð
Sjúkratryggingar Íslands

Client Experience Specialist
Nordic Luxury

Front Desk Agent
Lava Car Rental

Ferðaráðgjafi og Viðskiptaþróun í Hópadeild
Kilroy

Skrifstofu- og rekstrarumsjón
Tulipop

Skrifstofustjóri - Kirkjubæjarskóli
Skaftárhreppur

Sumarstarf hjá Söfnum og Upplýsingamiðstöð Dalvíkurbyggðar
Dalvíkurbyggð

Flotafulltrúi Okkar bílaleigu ehf./Enterprise
Enterprise Rent-A-Car á Íslandi

Fulltrúi í hópabókunardeild | Sumarstarf - Keahótel
Söluskrifstofa Keahótela

Þjónustufulltrúi
Fura ehf.

BÓKHALD - Ferðaskrifstofa
Eskimos Iceland