
HS Orka
HS Orka er framsækið og ört vaxandi orkufyrirtæki sem byggir á sjálfbærri nýtingu auðlinda. Nýsköpun hefur ávallt verið hluti af kjarnastarfsemi HS Orku og er uppbygging Auðlindagarðsins þar í fyrirrúmi. Áhersla er lögð á að skapa tækifæri með fullnýtingu auðlindastrauma í takti við náttúruna og í sátt við samfélagið.
Við erum í fararbroddi í orkuskiptum hér á landi og höfum sett okkur skýr og ábyrg markmið í loftslagsmálum. Spennandi þróunarverkefni eru í undirbúningi á vegum fyrirtækisins, jafnt í jarðvarma sem vatnsafli, auk þess sem kostir vindorku eru til skoðunar til lengri tíma.
Við erum þriðji stærsti orkuframleiðandi landsins og framleiðum raforku í Svartsengi, Reykjanesvirkjun, Brúarvirkjun og Fjarðarárvirkjunum. Einnig seljum við heitt og kalt vatn til heimila og fyrirtækja á Suðurnesjum, auk annarra auðlindastrauma í Auðlindagarðinum. Við miðlum líka raforku frá fjölda sjálfstæðra orkuframleiðenda vítt og breytt um landið.
Við erum ótrúlega skemmtilegur hópur starfsfólks sem störfum í sveigjanlegu og fjölskylduvænu vinnuumhverfi þar sem heilbrigði, hollusta og vellíðan eru í öndvegi. Kaffið okkar er líka frábært! Mikil áhersla er lögð á lipurð í samskiptum, liðsheild og framsækni. Þannig náum við best markmiðum okkar um ábyrga auðlindanýtingu í sátt við samfélagið.
Við erum stærsta orkufyrirtæki landsins í einkaeigu. Eignarhaldið skiptist að jöfnu milli Jarðvarma, sem er samlagshlutafélag í eigu fjórtán íslenskra lífeyrissjóða, og sjóða í stýringu Ancala, sjóðastýringafélags með höfuðstöðvar í Bretlandi.

Sérfræðingur í stjórnbúnaði
Við erum að stækka teymið okkar og leitum að sérfræðingi í stjórnbúnaði til að sjá um rekstur og viðhald á OT kerfum okkar.
Þú tilheyrir skemmtilega framleiðsluteyminu sem er hjartað í starfsemi okkar.
Umsóknarfrestur er til og með 26. febrúar 2026.
Nánari upplýsingar veitir Petra Lind Einarsdóttir, mannauðsstjóri, [email protected].
Helstu verkefni og ábyrgð
- Rekstur og endurnýjun á SCADA/PLC kerfum orkuvera.
- Rekstur á OT kerfi HS Orku.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Rafvirki, rafiðnfræðingur, rafmagnstæknifræðingur eða sambærileg menntun.
- Þekking og reynsla í rekstri stjórnkerfa.
- Vera fær í samskiptum og skipulagi.
- Geta sýnt frumkvæði, þolinmæði, aga og sjálfstæði í starfi.
Advertisement published10. February 2026
Application deadline26. February 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Orkubraut 3, 240 Grindavík
Type of work
Skills
ProactiveAmbitionPrecisionIndependenceWorking under pressure
Work environment
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Vilt þú gæta að öryggi fjarskipta í sumar?
Míla hf

Umsjónarmaður eignastýringarkerfis
Landsnet hf.

Spennandi sumarstörf vélvirkja og rafvirkja
Norðurál

Kennari í rafiðngreinum
Menntaskólinn á Ísafirði

Innviðir framtíðarinnar - Ofar leitar að sérfræðingum í gagnaverum
Ofar

Tæknimaður Brunaviðvörunarkerfa og Myndavélakerfa
Árvirkinn ehf.

Tæknimaður Þjófaviðvörunar- og Aðgangsstýringakerfa
Árvirkinn ehf.

Tæknimaður Prófanir Brunaviðvörunarkerfi og Neyðarlýsingu
Árvirkinn ehf.

Rafvirkjar og verkefnastjórar óskast - Fjölbreytt og spennandi verkefni hjá Árvirkjanum.
Árvirkinn ehf.

Sérfræðingur í iðnstýringum
EFLA hf

Verkefnastjóri stafrænna kerfa
Landsnet hf.

Sérfræðingur í rekstri stjórn- og varnarbúnaðar
Landsnet hf.