
Háskóli Íslands
Háskóli Íslands er einn stærsti vinnustaður landsins. Auk tæplega þrettán þúsund nemenda starfa þar rúmlega sextán hundruð fastráðnir starfsmenn og yfir tvö þúsund stundakennarar og lausráðnir starfsmenn.Megin hlutverk Háskólans er að vera vísindaleg rannsókna- og fræðslustofnun. Til þess að svo megi vera þarf fjölmarga ólíka starfsmenn.
Háskóli Íslands er lifandi samfélag þar sem saman koma einstaklingar með ólíkan bakgrunn en allir vinna þó að sama marki að gera Háskóla Íslands að enn öflugri menntastofnun en hún er í dag.
Markmið Háskóla Íslands er að vera í fremstu röð háskóla og að nota alþjóðlega viðurkennda mælikvarða við allt gæðamat á starfi skólans. Gerðar eru kröfur til kennara, stjórnenda og annars starfsfólks til að ná þessu markmiði.
Í könnunum sem gerðar hafa verið um starfsumhverfi Háskóla Íslands kemur í ljós að starfsánægja er mikil, starfsandi góður og starfsfólk telur sig vera í góðri aðstöðu til að þróast í starfi.

Sérfræðingur í rannsóknaþjónustu Háskóla Íslands
Laust er til umsóknar fullt starf sérfræðings í rannsóknaþjónustu á Vísinda- og nýsköpunarsviði Háskóla Íslands.
Sérfræðingurinn mun taka þátt í uppbyggingu öflugrar og samræmdrar rannsóknaþjónustu við Háskóla Íslands. Fyrstu tvö árin mun viðkomandi gegna starfi rannsóknastjóra Félagsvísindasviðs og leiða þróun rannsóknaþjónustu sviðsins.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Leiða og þróa rannsóknaþjónustu Félagsvísindasviðs með áherslu á gæði, skilvirkni og góða þjónustu við fræðafólk
- Veita ráðgjöf og stuðning við mótun rannsóknaverkefna, gerð styrkumsókna og rekstur rannsóknaverkefna
- Miðla upplýsingum um innlenda og erlenda styrkjamöguleika og halda utan um lykilupplýsingar um rannsóknir og rannsóknastyrki
- Þróa og innleiða verkferla, regluverk og samninga sem stuðla að faglegri og skilvirkri umsýslu rannsókna
- Taka þátt í stefnumótun á sviði rannsókna og rannsóknainnviði
- Byggja upp og viðhalda samstarfi við innlenda og erlenda samstarfsaðila
- Efla sýnileika rannsókna og taka þátt í miðlun vísinda, skipulagningu viðburða og samstarfi við vísindanefndir og aðra stýrihópa
Menntunar- og hæfniskröfur
- Meistarapróf sem nýtist í starfi, doktorspróf er kostur
- Reynsla af þátttöku í rannsóknaverkefnum
- Þekking á innlendu og alþjóðlegu styrkjakerfi rannsókna og nýsköpunar
- Reynsla af gerð styrkumsókna og utanumhaldi alþjóðlegra verkefna er kostur
- Þekking á fjármálum og umsýslu rannsóknastyrkja er kostur
- Reynsla af rannsóknastarfi innan háskóla og þekking á starfi rannsóknastofnana er kostur
- Góð færni í íslensku og ensku, bæði í rituðu og töluðu máli
- Góð færni í upplýsingatækni og hæfni til að tileinka sér nýjungar á því sviði
- Fagmennska, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Rík þjónustulund, sveigjanleiki og góð samskipta- og samstarfshæfni
Advertisement published31. July 2026
Application deadline14. August 2026
Language skills
EnglishRequired
IcelandicRequired
Location
Sæmundargata 2, 101 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags