Landvernd
Landvernd

Sérfræðingur í menntateymi Grænfánans

Grænfáninn á Íslandi

Við leitum að skapandi og drífandi einstaklingi til starfa í menntateymi Landverndar.

Menntateymið hefur umsjón með alþjóðlegu menntaverkefnunum Grænfánanum og Umhverfisfréttafólki.

Grænfánaverkefnið er rekið á öllum skólastigum á Íslandi og talið eitt besta innleiðingartæki menntunar til sjálfbærni í dag. Umhverfisfréttafólk er spennandi verkefni þar sem ungu fólki gefst tækifæri til þess að kynna sér umhverfismál, miðla þeim og senda í keppni á vegum Landverndar.

Umsókn þarf að fylgja ferilskrá og greinagerð þar sem ástæða umsóknar eru útlistuð, hæfni viðkomandi til að gegna starfinu lýst og listi yfir 2-3 meðmælendur gefinn. Umsóknir skulu sendar á [email protected] merktar „Grænfánaumsókn“. Umsóknarfrestur er til 22. júní.

Nánari upplýsingar veitir Sigurlaug Arnardóttir verkefnisstjóri Grænfánans, [email protected] og í s. 6914261

Helstu verkefni og ábyrgð

·      Úttektir í þátttökuskólum

·      Sjá um kynningar og námskeið í skólum og víðar

·      Ráðgjöf til skóla varðandi umhverfismál og menntun til sjálfbærni

·      Námsefnisgerð

·      Kynningarmál menntaverkefna Landverndar

·      Skipuleggja viðburði ásamt menntateymi

·      Vinnur að þróun og framgangi menntaverkefna ásamt menntateymi

 

Menntunar- og hæfniskröfur

·      Háskólapróf, kostur ef það er á sviði mennta - eða umhverfisvísinda

·      Færni í mannlegum samskiptum ásamt metnaði í starfi

·      Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð

·      Góð færni í íslensku og ensku

·      Æskilegt er að viðkomandi hafi þekkingu á menntun til sjálfbærni

·      Góð þekking á upplýsingamiðlun

·      Reynsla af starfi í skólum og/eða starfi með börnum  og ungmennum er æskileg

 

Advertisement published5. June 2026
Application deadline22. June 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Guðrúnartún 1, 105 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Driver's license (B)PathCreated with Sketch.CanvaPathCreated with Sketch.FacebookPathCreated with Sketch.Article writingPathCreated with Sketch.InstagramPathCreated with Sketch.Marketing
Work environment
Professions
Job Tags