Félagsbústaðir
Félagsbústaðir

Sérfræðingur í leigjendamálum

Félagsbústaðir leita að sérfræðingi til að sinna fjölbreyttum verkefnum á þjónustu- og upplýsingasviði félagsins í tímabundnu starfi til eins árs.

Ábyrgðarsvið

Sérfræðingur sinnir leigjendamálum sem varða húsreglnabrot, vanskil, samskiptavanda og önnur mál sem kunna að koma upp. Starfið felur í sér umfangsmikil samskipti við leigjendur og krefst því framúrskarandi samskiptahæfni, ákveðni og faglegra vinnubragða. Sérfræðingur kemur einnig að fjölbreyttum verkefnum og vinnur náið með þjónustumiðstöðvum og Velferðarsviði Reykjavíkurborgar að sameiginlegum verkefnum. Þá ber sérfræðingur ábyrgð á framkvæmd útburða og hefur umsjón með búslóðageymslu.

Helstu verkefni og ábyrgð

·     Afgreiðsla, úrvinnsla og úrlausn erinda sem varða meðal annars húsreglnabrot, vanskil og        samskiptavanda í eignum félagsins.

·     Þátttaka í þróunar- og umbótaverkefnum á sviði þjónustu og samskipta við leigjendur            og aðra hagsmunaaðila.

·    Samskipti og samstarf við leigjendur, þjónustumiðstöðvar Reykjavíkurborgar og aðra               samstarfsaðila.

·     Umsjón með og framkvæmd útburða.

·     Þátttaka í gerð greinargerða, umsagna og annarra faglegra skjala.

·      Önnur tilfallandi verkefni.

Menntunar- og hæfniskröfur

·         Reynsla af sambærilegu starfi á sviði velferðarþjónustu er kostur.

·         Framúrskarandi samskiptafærni, hlýlegt viðmót og rík þjónustulund.

·         Fagleg vinnubrögð, ákveðni og áhugi á að veita framúrskarandi þjónustu.

·         Góðir skipulagshæfileikar og hæfni til að forgangsraða verkefnum.

·         Hæfni til að starfa bæði sjálfstætt og í teymi, ásamt vilja til að læra og þróast í starfi.

·         Góð almenn tölvukunnátta.

·         Góð íslensku- og enskukunnátta; önnur tungumálakunnátta er kostur.

·         Áhugi á að bæta skilvirkni og stuðla að umbótum í starfi.

·         Frumkvæði, sjálfstæði og ábyrgð í vinnubrögðum.

 

Menntunarkröfur

·         Háskólapróf sem nýtist í starfi.

Advertisement published30. June 2026
Application deadline12. July 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Þönglabakki 4, 109 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.FlexibilityPathCreated with Sketch.Team workPathCreated with Sketch.Customer service
Work environment
Professions
Job Tags