BL ehf.
BL ehf.
BL ehf.

Sérfræðingur í fræðslu og þjálfun

Við leitum að öflugum sérfræðingi í fræðslu og þjálfun sem hefur brennandi áhuga á bílum, tækni og miðlun þekkingar.

Starfið snýst um að efla þekkingu og færni starfsfólks BL, styðja við tæknimenn þjónustusviðs og tryggja að mismunandi teymi þjónustusviðs séu ávallt með nýjustu upplýsingar frá framleiðendum.

Þú verður lykilaðili í að byggja upp faglega þjálfun, styðja við úrlausn tæknilegra mála og stuðla að framúrskarandi þjónustu hjá BL.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skipuleggja og fylgja eftir þjálfun vegna nýrra bíla, nýrrar tækni og krafna framleiðenda
  • Miðla þekkingu og fræðsluefni til starfsfólks á skýran og hagnýtan hátt
  • Halda utan um rafræna fræðslu og tryggja virka þátttöku starfsfólks
  • Styðja við tæknimenn, verkstjóra og þjónustusvið í flóknari tæknimálum
  • Taka þátt í þjálfun nýs starfsfólks og nema í vinnustaðanámi
  • Sækja upplýsingar og þjálfun frá framleiðendum og koma þeim áfram innan BL
  • Stuðla að aukinni þekkingu, fagmennsku og samræmdum vinnubrögðum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Sveinspróf í bifvélavirkjun er skilyrði
  • Meistarapróf í bifvélavirkjun er kostur
  • Góð þekking á bílum, bilanagreiningu og nýrri tækni
  • Góð samskiptahæfni og ánægja af því að miðla þekkingu
  • Skipulagshæfni, nákvæmni og sjálfstæð vinnubrögð
  • Frumkvæði, þjónustulund og lausnamiðuð nálgun
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Almenn tölvufærni, t.d. PowerPoint, Excel og Outlook
  • Ökuréttindi
Fríðindi í starfi
  • Afsláttur af nýjum bílum 
  • Afsláttarkjör af aukahlutum, varahlutum, þjónustu ofl. 
  • Íþróttastyrkur 
  • Mötuneyti með heitum mat 
  • Afsláttur hjá systurfélögum BL; 
    • Hleðslu og hleðslustöðvum Ísorku 
    • Leiga á bílum hjá Hertz
Advertisement published27. May 2026
Application deadline15. June 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Expert
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Sævarhöfði 2, 110 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Driver's license (B)PathCreated with Sketch.MechanicPathCreated with Sketch.TroubleshootingPathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.Public speakingPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.TeachingPathCreated with Sketch.Master craftsmanPathCreated with Sketch.PrecisionPathCreated with Sketch.Driver's licencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Journeyman license
Professions
Job Tags