Míla hf
Míla hf
Míla hf

Sérfræðingur í bókhaldi og launavinnslu

Hefur þú gaman af fjölbreyttum verkefnum og vilt starfa í öflugu og faglegu umhverfi? Við erum að leita að nýjum samstarfsfélaga í nýtt stöðugildi sem mun meðal annars sinna bókhaldi og launavinnslu.

Við leitum að jákvæðum, metnaðarfullum og skipulögðum einstaklingi sem hefur gaman af því að vinna í öflugu og samheldnu teymi þar sem samvinna er í fyrirrúmi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Færsla og afstemming bókhalds, önnur almenn bókhaldsvinna
  • Umsjón og ábyrgð á launabókhaldi
  • Þróun og umbætur á bókhalds- og launatengdum ferlum
  • Önnur tilfallandi verkefni á sviði fjármála og reksturs
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð þekking og reynsla af bókhaldsstörfum
  • Reynsla af launavinnslu er kostur
  • Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi
  • Góð almenn tölvukunnátta m.a. af bókhaldskerfum og Excel
  • Nákvæmni, skipulögð vinnubrögð og hæfni til að vinna með og greina töluleg gögn
Fríðindi í starfi
  • 🔋 Miðlægar starfsstöðvar í Reykjavík með hleðslustæðum
  • 🚲 Samgöngustyrkur til að styðja virka samgöngumáta
  • 🚿 Hjólageymsla með rafmagni og aðgangur að sturtum
  • 🥗 Mötuneyti á staðnum með salatbar og grænkerakostum
  • 💪 Metnaðarfullt starfsumhverfi með möguleika á starfsþróun
  • 🥳 Öflugt félagslíf á vegum starfsmannafélags og afþreyingarherbergi með billiard-borði
Advertisement published13. February 2026
Application deadline2. March 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Stórhöfði 22-30, 110 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.Microsoft ExcelPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.SAPPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Team work
Work environment
Professions
Job Tags