ECIT
ECIT
ECIT

Sérfræðingur í bókhaldi hjá ECIT á Höfn.

ECIT á Íslandi er alþjóðlegt fyrirtæki á sviði bókhalds- og launavinnslu með um 110 sérfræðinga sem hafa aðsetur á 13 stöðum um land allt.

Við leitum nú að öflugum einstaklingum með reynslu og þekkingu í bókhaldi og launavinnslu til starfa á skrifstofu okkar á Höfn í Hornafirði. Við leitum að sérfræðingum í fullt starf og kostur ef viðkomandi getur hafið störf sem fyrst.

Starfsfólk okkar þarf almennt að geta tekið frumkvæði og unnið sjálfstætt, vera lausnamiðað, þjónustulundað og eiga auðvelt með samskipti við samstarfsfólk og viðskiptavini félagsins.

Í samræmi við markmið okkar í jafnréttismálum hvetjum við öll til að sækja um óháð kyni.

Helstu verkefni og ábyrgð

Færsla og afstemming bókhalds fyrir viðskiptavini ECIT á Íslandi.

Skil í uppgjör og skil á virðisaukaskatti

Upplýsingagjöf og almenn ráðgjöf til viðskiptavina.

Önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur

Viðskiptamenntun æskileg og/eða nám til viðurkennds bókara.

Krafa um góða þekkingu og reynslu af bókhaldsstörfum

Reynsla af einfaldri launavinnslu

Þekking og reynsla af bókhaldskerfum

Enskukunnátta æskileg

Talnagleggni og tölvufærni

Sjálfstæð og nákvæm vinnubrögð

Rík þjónustulund og jákvæðni

Advertisement published12. August 2026
Application deadline31. August 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Litlabrú 1, 780 Höfn í Hornafirði
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Working under pressurePathCreated with Sketch.Customer service
Work environment
Professions
Job Tags