
Sérfræðilæknir á örorkusvið TR
Laust er til umsóknar starf læknis hjá Tryggingastofnun (TR). Um er að ræða spennandi og krefjandi starf læknis á örorkusviði.
Umfangsmiklar breytingar á örorku- og endurhæfingarkerfinu, tóku gildi sl. haust, þegar samþætt sérfræðimat sem er nýtt og heildrænt matskerfi tók við af hefðbundnu örorkumati. Samþætta sérfræðimatið er forsenda fyrir greiðslu örorkulífeyris eða hlutaörorkulífeyris og byggir á alþjóðlegu flokkunarkerfi ICF (International Classification of Functioning, Disability and Health) frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni.
TR leitar að lækni í hlutastarf til að sinna læknisfræðilegu mati á umsóknum um samþætt sérfræðimat, þar sem metið er hvort umsækjandi uppfylli skilyrði til örorkulífeyris eða hlutaörorkulífeyris.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
- Framkvæmd læknisfræðilegs mats á umsóknum um örorkulífeyri í samræmi við samþætt sérfræðimat
- Veita ráðgjöf í læknisfræðilegum málum, m.a. við mat á umsóknum og túlkun læknisfræðilegra gagna
- Taka þátt í öðrum verkefnum sem tengjast læknisfræðilegu mati innan almannatryggingakerfisins, í samvinnu við fagaðila og teymi stofnunarinnar
- Íslenskt læknaleyfi og sérfræðileyfi t.d. í geðlækningum, endurhæfingarlækningum, bæklunarlækningum, heimilislækningum eða annarri sérfræðigrein sem nýtist í starfi
- Góð þekking og reynsla af mati á læknisfræðilegum gögnum, helst í tengslum við almannatryggingar, endurhæfingu eða örorkumál
- Góð fagleg greiningarhæfni og hæfni til að vinna með flókin mál
- Reynsla af samvinnu í þverfaglegum teymum er kostur
- Færni í skýrri og vandaðri framsetningu á niðurstöðum og rökstuðningi
- Góð samskiptahæfni, jákvæð viðhorf og fagmennska
- Vilji til að taka þátt í þróun nýs matskerfis og leggja til faglega innsýn
Icelandic
English