Wolt
Wolt

Senior Key Account Manager

Sem Senior Key Account Manager berð þú ábyrgð á eignasafni 50–70 veitingastaða og verslana. Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á að byggja upp gagnkvæm og árangursrík tengsl við samstarfsaðila Wolt.

Þú munt tryggja að samstarfsaðilar okkar vaxi og dafni með því að greina vaxtartækifæri og veita þeim þau tæki og þann stuðning sem þarf.

Þessi staða ber ábyrgð á stórum hluta tekna Wolt á Íslandi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Byggja upp sterk og markviss tengsl við veitingastaði og verslanir um allt land.
  • Leiða samningaviðræður og kynna nýjar vörur og þjónustu s.s. Wolt+ og Wolt Drive, til að hámarka arðsemi samstarfsaðila.
  • Veita ráðgjöf, framkvæma gæðaúttektir og bjóða upp á skapandi lausnir til að aðstoða samstarfsaðila við að ná markmiðum sínum.
  • Meta reglulega árangur samstarfsaðila, forgangsraða aðgerðum og nýta nýjustu strauma og greiningartól eins og Looker til að styðja við vöxt þeirra.
  • Keyra tekjuvöxt með gagnadrifinni nálgun, bæði fyrir samstarfsaðila og Wolt.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af viðskiptastjórnun eða sambærilegum störfum er skilyrði
  • Menntun: Háskólagráða sem nýtist í starfi er skilyrði.
  • Hæfni til að greina árangursmælikvarða og gögn til að bæta tengsl og afkomu samstarfsaðila.
  • Tungumál: Fullkomin færni í íslensku og ensku.
  • Tæknikunnátta: Þekking á CRM kerfum og greiningartólum (s.s. Looker eða Power BI) er kostur.
Fríðindi í starfi

Við bjóðum upp á fyrsta flokks starfsaðstöðu á nýrri skrifstofu okkar í Ármúla auk þess sem starfsmenn njóta sérkjara á hjá veitingastöðum Wolt. 
Einnig eru regluleg ferðalög, svo sem ráðstefnur og fundir sem viðkomandi hefur möguleika á að sækja í öðrum löndum þar sem Wolt er með starfsstöðvar. 

Advertisement published12. June 2025
Application deadline24. July 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Expert
Location
Ármúli 13, 108 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags