
Rafmiðlun
Rafmiðlun hf. er eitt stærsta rafverktakafyrirtæki landsins og veitir alhliða þjónustu og lausnir á sviði rafverktöku, hvort sem verkefnin eru stór eða smá.
Fyrirtækið býður upp á heildarlausnir á sviði rafverktöku, þar með talið ráðgjöf, hönnun, teikningar, efnisöflun og framkvæmd. Rafmiðlun leggur ríka áherslu á fagmennsku, ábyrgð og góða þjónustu við viðskiptavini sína.
Hjá Rafmiðlun starfa yfir 150 manns og er lögð mikil áhersla á að öll verkefni séu unnin af fagmennsku og metnaði. Mannauðurinn er lykillinn að góðum árangri og því eru jafnlaunavottun, gæða- og öryggismál, ásamt endur- og símenntun starfsfólks, í stöðugum forgangi. Starfsfólki býðst reglulega að sækja námskeið og fræðslu til að efla þekkingu sína og færni í starfi.
Hjá fyrirtækinu er öflugt og virkt starfsmannafélag og lögð er áhersla á góðan starfsanda, samheldni og að starfsfólk hittist og eigi góðar stundir saman.
Rafmiðlun hefur hlotið viðurkenningu sem framúrskarandi fyrirtæki síðastliðin ár.
Gildi og stefna Rafmiðlunar byggja á því að vera traust og framúrskarandi fyrirtæki sem bæði starfsfólk og viðskiptavinir geta treyst.

Sendibílstjóri
Rafmiðlun leitar að drífandi og ábyrgum einstaklingi í starf sendibílstjóra.
Starfið felur meðal annars í sér að keyra vörur og efni á milli vinnusvæða fyrirtækisins ásamt samskiptum við starfsfólk og viðskiptavini Rafmiðlunar.
Við leitum að skipulögðum, þjónustuliprum og jákvæðum einstaklingi sem getur unnið sjálfstætt og sýnt frumkvæði í starfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Akstur og afhending á vörum og efni fyrir vinnusvæði fyrirtækisins
- Umsjón og ábyrgð á vinnubifreiðum
- Almenn umhirða og eftirlit með bifreiðum
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Gild ökuréttindi skilyrði
- Gilt meirapróf skilyrði
- Lyftarapróf er kostur
- Rík þjónustulund og góð samskiptahæfni
- Góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu
- Fagleg framkoma og snyrtimennska
- Öguð og vönduð vinnubrögð
- Stundvísi og heiðarleiki
- Almenn tölvukunnátta
- Jákvætt og lausnamiðað hugarfar
- Hreint sakavottorð
Fríðindi í starfi
- Vinnufatnaður
- Sími
Advertisement published5. June 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
EnglishOptional
IcelandicRequired
Location
Ögurhvarf 8, 203 Kópavogur
Type of work
Skills
ProfessionalismClean criminal recordDriver's licenceNeatnessPunctualDeliveryCargo transportationCustomer servicePatience
Professions
Job Tags
Similar jobs (11)

Reykjavík: Bílstjóri á tunnuþvottabíl (C réttindi)
Íslenska gámafélagið ehf.

Sölufulltrúi í framtíðarstarf
Gæðabakstur

Vöruhús / lager
Icetransport

Afgreiðsla - Lager Vöruhús
Vatnsvirkinn ehf

Bílstjóri / Lestunarmaður
Vaðvík

Meiraprófsbílstjóri hjá GA Smíðajárn
GA Smíðajárn

Bílstjórar óskast - C og B réttindi
Sendibílar Reykjavíkur ehf.

Uppsetningarmaður
Casalísa

Útkeyrsla / lager
Icetransport

Starfsmaður í útkeyrslu
Autoparts.is

Bílstjóri hjá Sælkeramat (Sumarstarf með möguleika á áframhaldi)
Sælkeramatur ehf.