Veitur
Veitur
Veitur

Samskiptastýra/-stjóri/-stýri Veitna

Veitur leita að samskiptastýru/-stjóra/-stýri sem leiðir stefnumótun og áherslur félagsins í samskiptamálum. Hlutverkið felst í að tryggja að samskipti styðji við stefnu, ákvarðanir og markmið Veitna og styrki traust og skilning almennings, viðskiptavina, sveitarfélaga og stjórnvalda á verkefnum fyrirtækisins.

Veitur eru á einu umfangsmesta uppbyggingarskeiði í sögu félagsins. Við rekum ómissandi innviði og fjárfestum fyrir 20–25 milljarða króna á ári í hitaveitu, vatnsveitu, rafveitu og fráveitu. Verkefni okkar snerta daglegt líf um 70% landsmanna og kalla oft á samtal um flókin og stundum umdeild mál.

Starfið heyrir beint undir framkvæmdastýru og situr viðkomandi framkvæmdastjórnarfundi. Samskiptastýra/-stjóri/-stýri starfar með upplýsingafulltrúa Veitna, sem sinnir daglegri upplýsingamiðlun og í samstarfi við samskiptateymi Orkuveitunnar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Móta og leiða samskiptastefnu Veitna.
  • Tryggja markviss og samræmd innri og ytri samskipti Veitna.
  • Vera framkvæmdastýru og framkvæmdastjórn ráðgefandi í stefnumótun, upplýsingagjöf og samskiptum.
  • Byggja upp og viðhalda sterkum tengslum við sveitarfélög, stjórnvöld og aðra hagaðila.
  • Leiða fjölmiðlasamskipti og samskipti við hagaðila vegna viðkvæmra eða umdeildra mála.
  • Tryggja að samskipti Veitna styðji við stefnu, orðspor og traust fyrirtækisins til lengri tíma.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Umfangsmikil reynsla af stefnumótandi samskiptum og ráðgjöf við stjórnendur.
  • Reynsla af samskiptum við stjórnvöld og/eða sveitarfélög er mikill kostur.
  • Reynsla af samskiptum og umræðu um umdeild mál.
  • Góð þekking á fjölmiðlum og samfélagsumræðu.
  • Hæfni til að gera flókin mál skýr og aðgengileg.
  • Framúrskarandi færni í íslensku, bæði í ræðu og riti.
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
Hvers vegna Veitur?

Veitur tengja samfélagið við rafmagn, hita, hreint vatn og fráveitu. Við veitum lífsgæði til framtíðar með nýsköpun, samstarfi og öruggum rekstri. Veitur eru stærsta veitufyrirtæki landsins og þjónusta um 70% landsmanna. Við setjum viðskiptavininn í forgrunn, leitum stöðugt leiða til að bæta þjónustuna og vinnum að því að skapa trausta innviði til framtíðar.

Við bjóðum fjölbreytt og stuðningsríkt vinnuumhverfi þar sem framsýni, hagsýni, heiðarleiki og frumkvæði skipta máli. Við trúum að fjölbreytileiki skili betri árangri og hvetjum öll sem uppfylla grunnskilyrði til að sækja um.

Kynntu þér vinnustaðinn á www.veitur.is/vinnustadurinn.

Umsóknarfrestur og aðrar upplýsingar

Umsóknarfrestur er til og með 12. október 2026. Nánari upplýsingar veitir Sólrún Kristjánsdóttir, framkvæmdastýra Veitna, á netfanginu [email protected].

Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál og verður listi yfir umsækjendur ekki birtur.

Advertisement published25. September 2026
Application deadline12. October 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Intermediate
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Bæjarháls 1, 110 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Public relationsPathCreated with Sketch.AdaptabilityPathCreated with Sketch.Public speakingPathCreated with Sketch.Article writingPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.MarketingPathCreated with Sketch.Business strategyPathCreated with Sketch.Working under pressurePathCreated with Sketch.Event management
Work environment
Professions
Job Tags