
NORA Seafood
Um NORA:
NORA er íslenskt sjávarútvegsfyrirtæki með höfuðstöðvar á Ísafirði, í hjarta Vestfjarða. Starfsemi fyrirtækisins byggir á sterkri tengingu við hafið, náttúruna og þau verðmæti sem Vestfirsku fiskimiðin hafa upp á að bjóða.
Fyrirtækið annast eigin veiðar & vinnslu og hefur þannig beina stjórn á virðiskeðjunni, allt frá veiðum til vinnslu og sölu. Með því tryggjum við rekjanleika, áreiðanleika og hágæða sjávarafurðir sem uppfylla kröfur viðskiptavina á innlendum markaði.
Nálægðin við gjöful fiskimið Vestfjarða og áratuga þekking á íslenskum sjávarútvegi eru hornsteinar starfseminnar. Við leggjum áherslu á ábyrgð í nýtingu auðlinda hafsins, öflugt samstarf við starfsfólk og viðskiptavini og stöðuga þróun í rekstri og vinnslu.

Samfélagsmiðlar og hönnun – hlutastarf hjá NORA
NORA á Ísafirði leitar að skapandi einstaklingi í samfélagsmiðla og hönnun
Nora Seafood ehf leitar að öflugum og skapandi einstaklingi til að sjá um samfélagsmiðla og stafrænt efni fyrir fyrirtækið.
Við leitum að aðila hérna fyrir Vestan sem hefur mikinn áhuga á samfélagsmiðlum, skilur hvað vekur athygli á netinu og hefur gaman af því að skapa áhugavert og fallegt efni.
Helstu verkefni
- Umsjón með samfélagsmiðlum Nora (Instagram og Facebook)
- Hugmyndavinna og gerð efnis fyrir samfélagsmiðla
- Ljósmyndun og myndbandsgerð
- Klipping og vinnsla myndefnis fyrir samfélagsmiðla
- Hönnun á einföldu markaðs- og kynningarefni
- Þátttaka í að þróa sýnileika og vörumerki Nora á netinu
- Möguleiki á að þróa TikTok sem nýjan miðil fyrir fyrirtækið
Hæfniskröfur
- Góð íslenskukunnátta, bæði í tali og rituðu máli
- Mikill áhugi á samfélagsmiðlum og stafrænu markaðsefni
- Þekking á mynd- og myndbandsvinnslu
- Reynsla af forritum eins og Adobe Creative Suite (Photoshop, Illustrator, Premiere Pro), Canva, CapCut eða sambærilegum lausnum er kostur
- Menntun í grafískri hönnun eða skyldum greinum er mikill kostur
- Frumkvæði, sjálfstæði og skapandi hugsun
Starfshlutfall
Um er að ræða hlutastarf sem getur hentað mjög vel með námi eða annarri vinnu. Starfshlutfall og fyrirkomulag verður ákveðið í samráði við réttan aðila.
Umsóknir
Áhugasamir eru hvattir til að senda umsókn ásamt ferilskrá og dæmum um fyrri verkefni eða samfélagsmiðlavinnu á [email protected]
Við hlökkum til að heyra frá þér!
Advertisement published26. June 2026
Application deadline17. July 2026
Language skills
EnglishRequired
IcelandicRequired
Location
Skeiði 3, 400 Ísafjörður
Type of work
Skills
FacebookIllustratorInstagramPhotoshop
Professions
Job Tags

