

Reynslumiklir þjónar óskast á Ylju – Laugarás Lagoon
Við leitum að reynslumiklum, ábyrgum og jákvæðum þjónum til að slást í hópinn á einstökum áfangastað í Laugarási, þar sem náttúra, vellíðan og dýrmæt upplifun mætast á einum stað.
Ylja er hlýlegur og hráefnisdrifinn veitingastaður sem leggur áherslu á hreinan mat og hráefni úr nærumhverfi, undir stjórn Gísla Matt.
Sem þjónn hjá okkur ertu lykilþáttur í upplifun gesta og með fagmennsku, nærveru og jákvæðu viðmóti tryggir þú að hver heimsókn verði eftirminnileg frá upphafi til enda.
Leitað er að einstaklingum með reynslu af þjónustu og áhuga á að starfa í lifandi og faglegu umhverfi.
Unnið er á vöktum samkvæmt 2-2-3 vaktakerfi
Við leitum að starfsfólki í:
• Fullt starf
• Sumarstarf með möguleika á framlengingu
- Veita persónulega og faglega þjónustu
-
Leiða gesti í gegnum mat og drykk með öryggi og þekkingu
-
Vinna í nánu samstarfi við eldhús og bar til að tryggja góða þjónustu
-
Sýna góða samskiptahæfni og vinna vel með öðru starfsfólki
-
Viðhalda snyrtilegu og öruggu vinnuumhverfi
-
Bregðast hratt við og tryggja að upplifun gesta sé jákvæð og eftirminnileg.
- Hefur reynslu af þjónustu á veitingastöðum
- Framúrskarandi þjónustulund, hlýleg og fagleg framkoma og kemur vel fyrir
- Er jákvæð/ur, snyrtileg/ur og áreiðanleg/ur í starfi
- Góð íslensku- og enskukunnátta (önnur tungumál eru kostur)
- Getur unnið vel í lifandi, hröðu og síbreytilegu umhverfi
- Hafa náð 20 ára aldri
- Tækifæri til að taka þátt í að skapa glænýjan vinnustað í einstöku umhverfi á Suðurlandi
- Tækifæri til starfsþróunar
- Líflegt starfsumhverfi innan ferðaþjónustunnar
- Aðgang að baðlóninu sem hluta af starfskjörum
- Afslætti af vörum og þjónustu Laugarás Lagoon
- Aðgangur að starfsmannahúsnæði er í boði.
English
Icelandic










