Wolt
Wolt

Viðskiptastjóri

Um Wolt

Hjá Wolt þróum við tækni sem einfaldar daglegt líf og skapar tekjumöguleika í samfélögum um allan heim. Við hófum starfsemi árið 2014 með heimsendingu á mat frá veitingastöðum. Í dag vinnum við að því að gera fólki kleift að fá nánast hvað sem er sent heim og erum starfandi í yfir 500 borgum í 30 löndum.

Hjá Wolt geturðu þróað starfsferilinn þinn hjá alþjóðlegu fyrirtæki í örum vexti. Sem hluti af DoorDash byggjum við upp alþjóðlegt markaðstorg sem getur komið nánast hvaða vöru sem er heim að dyrum á örfáum mínútum. Í dag eru yfir 55 milljónir skráðra notenda á vettvangi okkar og geta þeir pantað frá yfir 200.000 veitingastöðum og verslunum í 30 löndum.

Söluteymin okkar koma á og efla samstarf við verslanir og veitingastaði. Saman höfum við hjálpað stórum vörumerkjum, verslunum í heimabyggð og veitingastöðum að selja fyrir meira en 15 milljarða evra í gegnum markaðstorgið okkar. Við bætum sífellt við nýjum borgum og kynnum nýjar vörur og þjónustu. Því skapast stöðugt ný tækifæri til að efla hæfni þína og taka næstu skref á starfsferlinum.

Sem Viðskiptastjóri Smásölu hjá Wolt (Retail Account Manager) hjálpar þú nýjum smásöluaðilum að hefja samstarf við okkur og styður þá sem fyrir eru í að ná enn betri árangri. Þú færð tækifæri til að byggja upp öflugt samstarf, stuðla að vexti og gegna mikilvægu hlutverki í vexti Wolt á Íslandi.

Um starfið

Í þessu starfi hefur þú sjálfstæða umsjón með hópi smásöluaðila í samstarfi við Wolt. Þú berð ábyrgð á að efla viðskiptasamböndin, greina vaxtartækifæri og fylgja eftir aðgerðum sem stuðla að árangri samstarfsaðila og vexti Wolt á íslenskum markaði.

Main tasks and responsibilities

Helstu verkefni

  • Byggja upp og rækta traust viðskiptasambönd við smásöluaðila.

  • Leiða samningaviðræður um endurskoðun viðskiptakjara og kynna þjónustu á borð við Wolt+ og Wolt Drive til að efla samstarfið og auka tekjur.

  • Veita samstarfsaðilum ráðgjöf um umbætur, gæði þjónustu og nýjar leiðir til að ná markmiðum sínum.

  • Fylgjast reglulega með árangri samstarfsaðila og nýta gögn og greiningar til að greina vaxtartækifæri og forgangsraða aðgerðum sem skila mestum ávinningi.

  • Vinna með fjölbreyttum teymum innan Wolt að því að efla þjónustuna og stuðla að árangri samstarfsaðila.

  • Stuðla að tekjuvexti hjá bæði samstarfsaðilum og Wolt með því að byggja ákvarðanir á gögnum.

Educational and skill requirements

Það sem við leitum að

Við leitum að einstaklingi með reynslu og þekkingu í viðskiptastjórnun, sem hefur gott viðskiptavit og brennur fyrir því að efla samstarf, auka tekjur og bæta arðsemi.

  • Þú hefur góða greiningarhæfni og nýtir gögn til að taka upplýstar ákvarðanir. Þú hefur reynslu af að vinna með mælaborð í kerfum á borð við Looker eða Power BI.

  • Þú átt auðvelt með að nýta gervigreindar verkfæri í starfi.

  • Þú hefur framúrskarandi samskiptahæfni og átt auðvelt með að byggja upp traust tengsl við samstarfsaðila og samstarfsfólk.

  • Þú sýnir frumkvæði, vinnur sjálfstætt og forgangsraðar verkefnum eftir mikilvægi og ávinningi. Þú heldur vel utan um vaxtartækifæri og verkefni, fylgir þeim eftir og leitar ráðgjafar þegar þörf er á.

  • Þú hefur mjög góða íslensku- og enskukunnáttu, bæði í tali og riti.

Job benefits

Af hverju Wolt?

  • 🚀 Alþjóðlegt fyrirtæki í örum vexti: Vertu hluti af kraftmiklu fyrirtæki sem vex hratt.

  • 🤩 Tækifæri til að vaxa: Efldu þig í starfi, taktu að þér fjölbreytt verkefni og þróaðu hæfni þína.

  • 💪 Áhrif frá fyrsta degi: Taktu ábyrgð og láttu til þín taka.

  • 💙 Stór hjörtu og lítil egó: Starfaðu með hæfu og metnaðarfullu fólki.

Advertisement published30. September 2026
Application deadline11. November 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Reykjavík, 101 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags