Lindex
Lindex
Lindex

Rekstrarstjóri Lindex á Íslandi

S4S ehf mun taka við sem umboðsaðili Lindex á Íslandi frá og með 1. mars næstkomandi og leitar að öflugum og reynslumiklum rekstrarstjóra til að leiða rekstur Lindex hér á landi. Um er að ræða spennandi og fjölbreytt starf fyrir einstakling sem hefur brennandi áhuga á smásölu, rekstri og teymisvinnu.

Rekstrarstjóri mun sitja í framkvæmdastjórn S4S og bera ábyrgð á rekstri Lindex á Íslandi, í nánu samstarfi við verslunarstjóra, framkvæmdastjórn og markaðsdeild.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón og ábyrgð með rekstri Lindex verslana á Íslandi, þ.m.t. netverslun
  • Samstarf og stuðningur við verslunarstjóra sem annast daglega stjórnun verslana
  • Regluleg viðvera í verslunum til að styðja við daglegan rekstur, fylgjast með starfsemi og tryggja góð samskipti við starfsfólk
  • Gerð rekstraráætlana, eftirfylgni með árangri og daglegum rekstri
  • Umsjón með innkaupum, vöruflæði og samskiptum við birgja
  • Yfirsýn yfir mönnun verslana og skipulag vaktaplana
  • Samvinna við markaðsdeild S4S um markaðs- og kynningarmál Lindex á Íslandi
  • Virk þátttaka í áframhaldandi þróun og uppbyggingu Lindex á íslenskum markaði
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð reynsla af verslunarrekstri skilyrði
  • Reynsla af stjórnunarstörfum og mannaforráðum
  • Góð skipulagshæfni, sjálfstæði í vinnubrögðum og frumkvæði
  • Góð samskiptahæfni og hæfni til að vinna í teymi
  • Áhugi á tísku, vörumerkjastjórnun og smásölu
  • Viðeigandi menntun sem nýtist í starfi
Fríðindi í starfi

Við bjóðum:

  • Spennandi og fjölbreytt starf með áhrifum á daglegan rekstur og þróun verslunar
  • Tækifæri til að vinna með sterku og alþjóðlegu vörumerki
  • Sæti í framkvæmdastjórn S4S með öflugu baklandi og góðu samstarfi innan samstæðunnar
  • Metnaðarfullt og skemmtilegt starfsumhverfi
Advertisement published13. January 2026
Application deadline30. January 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Smáralind
Kringlan 4-12, 103 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags