RæstiTækni
RæstiTækni
RæstiTækni

Ræstitækni leitar að öflugum verkstjóra

Viltu leiða öflugt teymi og hafa áhrif á gæði þjónustu hjá traustu og vaxandi fyrirtæki ?

Ræstitækni leitar að drífandi, skipulögðum og metnaðarfullum verkstjóra til að stýra daglegum verkefnum í ræstingum og tryggja framúrskarandi þjónustu við viðskiptavini okkar.

Helstu verkefni og ábyrgð

Helstu verkefni

  • Umsjón og stjórnun ræstingarverkefna
  • Skipulagning og eftirfylgni með nýjum verkefnum
  • Stjórnun og stuðningur við starfsfólk í almennum ræstingum sem og sérverkefnum
  • Gæðaeftirlit og samskipti við viðskiptavini á verkstað
  • Þjálfun og leiðsögn starfsmanna
  • Eftirfylgni með verkferlum og þjónustugæðum
  • Teymisvinna með starfsfólki á skrifstofu
Menntunar- og hæfniskröfur

Við leitum að einstaklingi sem:

  • Hefur góða leiðtogahæfileika og reynslu af mannaforráðum
  • Býr yfir framúrskarandi samskiptahæfni
  • Er sjálfstæður, skipulagður og lausnamiðaður
  • Er stundvís og áreiðanlegur
  • Sýnir frumkvæði og hefur sterkan drifkraft
  • Er talnaglöggur og hefur góða kunnáttu í Excel og öðrum helstu tölvukerfum
  • Hefur reynslu af störfum við ræstingar, í ræstingargeiranum eða sambærilegum rekstri
  • Er með bílpróf og hreint sakavottorð
  • Getur tjáð sig á íslensku eða ensku
  • Spænskukunnátta er kostur
Fríðindi í starfi

Við bjóðum:

  • Fjölbreytt og krefjandi starf
  • Góðan starfsanda og öflugt teymi
  • Sterka liðsheild þar sem teymisvinna og samvinna eru í fyrirrúmi
  • Tækifæri til að hafa áhrif og þróast í starfi
  • Tækifæri til að taka þátt í þróun nýrra tæknilausna
  • Framsækið fyrirtæki sem leggur áherslu á nýsköpun, stöðuga þróun og betri verkferla
  • Starf hjá traustu fyrirtæki með sterka stöðu á markaði
  • Fullt starf með fastri yfirvinnu og góðum tekjumöguleikum
  • Morgunverð fyrir starfsfólk
  • Öflugt starfsmannafélag
  • Við hættum á hádegi á föstudögum
Advertisement published29. May 2026
Application deadline19. June 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Expert
Location
Nýbýlavegur 32, 200 Kópavogur
Type of work
Work environment
Professions
Job Tags