
Tónlistarskólinn á Akranesi
Hlutverk Tónlistarskólans á Akranesi er að stuðla að öflugu tónlistarlífi, jafnframt því að vinna að aukinni hæfni, þekkingu og þroska einstaklinga. Áhersla skal lögð á að skólinn þjóni öllum þeim sem eftir tónlistarnámi sækjast án tillits til aldurs, ennfremur ber skólanum að taka tillit til margbreytilegra áhugasviða nemenda, getu þeirra og þroska. Tónlistarskólinn á Akranesi býr við góðan aðbúnað til kennslu að Dalbraut 1 og býður upp á fjölbreytileika í skólastarfinu.
Píanókennari 100% staða
Við leitum að hæfum og áhugasömum píanókennara í fullt starf. Kennarinn mun sinna kennslu í klassískum og rytmískum píanóleik og vera virkur þátttakandi í starfi skólans. Fyrir réttan aðila getur meðleikur verið einhver hluti stöðunnar.
Gott er ef viðkomandi hefur reynslu af sambærilegu starfi.
Hlutastarf kæmi til greina en það er ekki fyrsta val okkar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Kennsla í klassískum og rytmískum píanóleik, einstaklingskennsla en þó getur verið um að ræða hópkennslu í einhverjum tilfellum.
- Undirbúningur kennsluáætlana, stundatöflugerð og umsjón með nemendahópnum og samskipti við forráðafólk.
- Skipulagning og þátttaka í tónleikum og tónfundum og þátttaka í deildar- og kennarafundum.
- Skráning og utanumhald nemenda í nemendaumsjónarkerfi
- Fagleg þróun og þátttaka í starfsdögum og endurmenntun.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun í píanókennslu/píanóleik eða sambærilegt próf frá viðurkenndum skóla.
- Reynsla af píanókennslu
- Ástríða fyrir kennslu og fjölbreyttum kennsluaðferðum auk góðra samskiptahæfileika.
- Skipulagsgáfa og nákvæmi er kostur í starfinu en einnig frumkvæði og sköpunargáfa.
- Þekking á helstu forritum og öppum sem tengjast starfinu
Fríðindi í starfi
- Skólinn býður góða starfsaðstöðu í sérútbúnum tónlistarstofum með píanói og/eða hljómborði.
- Stuðning við faglega þróun og þátttöku í endurmenntun.
- Vinnu í samvinnu við hæft og fjölbreytt kennarateymi.
- Líkamsræktarstyrk og niðurgreiðsla á mat á starfstíma.
Advertisement published13. April 2026
Application deadline10. May 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Tónlistarskólinn á Akranesi
Type of work
Professions
Job Tags
Similar jobs (9)

Tónskólastjóri
Tónskóli Mýrdalshrepps

Listrænn ráðgjafi
Sinfóníuhljómsveit Íslands

Álftanesskóli - tónmenntakennari
Garðabær

Píanókennari óskast
Tónmenntaskóli Reykjavíkur

Tónlistarkennari
Sveitarfélagið Strandabyggð

Lausar stöður Leikskólakennara fyrir skólaárið 2026-2027
Leikskólinn Leikholt

Hornkennari í hlutastarfi
Skólahljómsveit Kópavogs

Söngkennari - Tónlistarskóli Eyjafjarðar
Tónlistarskóli Eyjafjarðar

Kennarar óskast til starfa í Egilsstaðaskóla
Egilsstaðaskóli