

Óskum eftir vönum barþjónum
🍸 OCHE REYKJAVÍK LEITAR AÐ VÖNUM BARÞJÓNUM
Kanntu að hrista almennilegan kokteil, halda uppi stemningu og leika listir þínar á bak við barinn?
Við á Oche Reykjavík leitum að vönum barþjónum í hlutastarf sem hafa ástríðu fyrir góðum drykkjum, frábærri þjónustu og skemmtilegri upplifun fyrir gestina okkar.
Við leitum að fólki sem:
• Hefur reynslu af barstörfum og kokteilagerð
• Er öruggt og faglegt á bak við barinn
• Er hresst, jákvætt og ófeimið við gestina
• Kann að skapa stemningu og má gjarnan sýna smá takta
• Getur unnið virk kvöld og helgar
• Vill vera hluti af skemmtilegu og metnaðarfullu teymi
Við viljum að barinn okkar sé meira en bara staður til að panta drykk. Góðir kokteilar, góð stemning og smá show með. 🍸🎯
Hljómar þetta eins og þú?
Sendu okkur umsókn og segðu okkur aðeins frá þér.
Icelandic










