
Bera hf.
Bera er móðurfélag öflugrar samstæðu fyrirtækja á sviði drykkjarvöru- og matvælaframleiðslu, innflutnings og dreifingar. Félagið er skráð í kauphöll og fer með eignarhald á leiðandi rekstrarfélögum sem gegna mikilvægu hlutverki á íslenskum markaði.
Nafnið Bera hefur sterka sögulega tengingu við uppruna Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar og endurspeglar rætur, styrk og metnað samstæðunnar til framtíðar.
Dótturfélög Beru starfa sjálfstæð og sérhæfð rekstrarfélög sem hvert um sig byggir á traustum grunni þekkingar og reynslu:
• Ölgerðin er leiðandi fyrirtæki á drykkjarvörumarkaði á Íslandi.
• Danól – sérhæfir sig í innflutningi og markaðssetningu vörumerkja.
• Gæðabakstur – framleiðir og dreifir ferskum og gæðamiðuðum bakarísvörum.
• Kjarnavörur – framleiðir og dreifir fjölbreyttum mat- og neysluvörum.
Hlutverk Beru er að styðja við verðmætasköpun og sjálfbæran vöxt innan samstæðunnar. Félagið mótar heildarstefnu, tryggir skilvirka stoðþjónustu og skapar tækifæri til frekari þróunar og nýsköpunar.
Undir móðurfélaginu er meðal annars sameinuð þjónusta á sviði mannauðsmála, fjármála, stafrænnar þróunar, upplýsingatækni, gæðamála, sjálfbærni, innkaupa og vöruhúsareksturs. Með því nýtist stærðarhagkvæmni betur og rekstrarfélögin geta einbeitt sér að sinni kjarnastarfsemi og þjónustu við viðskiptavini.
Bera leggur áherslu á ábyrga stjórnarhætti, sjálfbærni og langtímahugsun í öllum sínum verkefnum. Markmið félagsins er að byggja upp öfluga og samkeppnishæfa samstæðu sem skapar verðmæti fyrir viðskiptavini, starfsfólk, hluthafa og samfélagið í heild.
Óskum eftir kerfisstjóra
Við leitum að öflugri og jákvæðri manneskju til að starfa sem kerfisstjóri.
Sem kerfisstjóri muntu bera ábyrgð á á uppbyggingu, rekstri og áframhaldandi þróun á tæknilegu umhverfi félagsins ásamt því að vera í lykilhlutverki við mótun á þjónustu við innri viðskiptavini. Stafræna teymið vinnur þvert á félögin og fær því einstaka innsýn inn í rekstur og gangverk samstæðunnar.
Bera er móðurfélag öflugrar samstæðu fyrirtækja á sviði drykkjarvöru- og matvælaframleiðslu, innflutnings og dreifingar. Félagið er skráð í kauphöll og fer með eignarhald á leiðandi rekstrarfélögum á íslenskum markaði svo sem Ölgerðin, Danól, Gæðabakstur og Kjarnavörum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Kerfisrekstur
- Umsjón með Windows þjónum
- Umsjón með Active Directory
- Umsjón með Microsoft 365
- Entra ID / Intune / Exchange online / SharePoint / Teams
- Umsjón með Azure þjónustum
- Þjónusta við innri viðskiptavini
- Innleiðingar, rekstur og bilanagreining í skýjalausnum og hybrid umhverfum
- Auka öryggi tölvuumhverfa
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Þekking á rekstri netþjóna og Microsoft skýjaþjónustum
- Þriggja ára reynsla af kerfisstjórn
- Nám í kerfisstjórnun eða önnur menntun sem nýtist í starfi er kostur
- Þekking á iðntölvum er kostur
- Þekking á rekstri netkerfa er kostur
- Öguð og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð samskiptahæfni og geta til að vinna í hóp og vera hluti af teymi
- Góð færni í íslensku og ensku, bæði skrifuðu og töluðu máli
- Hreint sakavottorð er skilyrði
Advertisement published8. May 2026
Application deadline22. May 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Grjótháls 7-11, 110 Reykjavík
Type of work
Skills
AzureSystem integrationAutomationComputer security
Professions
Job Tags
Other jobs (1)



