Leikskólinn Óskaland
Leikskólinn Óskaland
Leikskólinn Óskaland

Óska eftir einstakling til að vera stuðningur við barn með sykursýki týpu 1.

Leikskólinn Óskaland er níu deilda leikskóli. Óskaland er staðsett við Finnmörk 1, í Hveragerði í grónu hverfi þar sem stutt er í fjölbreytta skógi vaxna náttúru.  Árið 2025 voru fjórar nýjar deildir teknar í notkun við leikskólann auk glæsilegrar lóðar.   

Einkunnarorð Óskalands eru: Leikur – lífsgleði – lærdómur 

Í Óskalandi er sjálfsprottinn leikur aðal kennslutækið auk þess sem unnið með grenndar- og útikennslu, Vináttuverkefni Barnaheilla, Hugarfrelsi og Lubba.  

Leitað er að metnaðarfullum, skapandi og jákvæðum einstaklingi með góða hæfni í mannlegum samskiptum. Nauðsynlegt er að viðkomandi geti sýnt frumkvæði og unnið sjálfstætt og í hóp.  

Menntun og reynsla sem gæti nýst í starfi: 

  • Starf með börnum 

  • Reynsla af sykursýki 1  

  • Leikskólaliðamenntun 

  • Sjúkraliðamenntun eða önnur menntun á heilbrigðissviði 

Viðkomandi þarf að vera tilbúinn til að taka þátt í uppeldi og menntun barna í nánu samstarfi við stjórnendur og hafa gott vald á  íslenskri tungu. Umsækjendur skulu hafa hreint sakavottorð og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. 

Fríðindi í starfi: 

  • Forgangur í leikskólapláss  

  • Frítt fæði 

  • Stytting vinnuvikunnar  

  • Sundkort í sundlaugina í Laugaskarði 

Umsóknum skal skilað á netfangið: [email protected] ásamt ferliskrá. 

Nánari upplýsingar veita Gunnvör Kolbeinsdóttir skólastjóri  og Eva Hrönn Jónsdóttir aðstoðarskólastjóri í síma 4834139 eða á netfangið: [email protected]

Starfið hentar öllum kynjum.  Laun eru greidd  samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags. 

Advertisement published17. February 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Finnmörk 1, 810 Hveragerði
Type of work
Professions
Job Tags