Securitas
Securitas
Securitas

Öryggisvörður í hlutastarf á Akureyri

Við hjá Securitas á Akureyri leitum að liðsauka í okkar frábæra gæsluteymi. Viðkomandi kemur til með að taka þátt í að viðhalda góðu viðbragði og framúrskarandi þjónustu til viðskiptavina okkar. Lögð er rík áhersla á jákvætt hugarfar, sjálfstæð vinnubrögð og góðan liðsanda.

Þetta er kjörið tækifæri fyrir einstakling sem er tilbúinn að takast á við krefjandi og skemmtilegt verkefni sem snýr að öryggisgæslu.

Ef þú...

  • býrð yfir þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
  • sýnir frumkvæði í starfi og getu til að vinna sjálfstætt.
  • býrð yfir metnaði til að takast á við krefjandi verkefni.
  • Býrð yfir góðri íslenskukunnáttu.

... þá gætum við verið að leita að þér!

Í boði er hlutastarf á kvöldin og um helgar.

Við hvetjum öll kyn sem eru 20 ára eða eldri og eru með hreint sakavottorð og gilt ökuskírteini til þess að kynna sér starfið nánar og sækja um. Securitas leggur mikla áherslu á kennslu og þjálfun fyrir allt starfsfólk, sem og þróun í starfi.

Umsóknarfrestur er til og með 22. júlí nk. Við hvetjum umsækjendur til að skila inn umsóknum sem fyrst þar sem unnið verður úr þeim jafnóðum og þær berast. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál og er öllum umsóknum svarað.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Jónas Björnsson, útibússtjóri, í síma 580-7000

Advertisement published15. July 2026
Application deadline22. July 2026
Language skills
ÍslenskaÍslenska
Required
Mjög góð
EnskaEnska
Required
Meðalhæfni
Location
Tryggvabraut 10, 600 Akureyri
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Customer service
Suitable for
Professions
Job Tags