Vegagerðin
Vegagerðin
Vegagerðin

Öryggisstjóri Vegagerðarinnar

Vegagerðin leitar að öflugum öryggisstjóra til að leiða og samræma öryggis- og vinnuverndarmál stofnunarinnar. Eitt af meginmarkmiðum Vegagerðarinnar er Öryggi að leiðarljósi: Við höfum öryggi og öryggismenningu að leiðarljósi í allri okkar starfsemi, jafnt fyrir notendur samgöngukerfisins, starfsfólk Vegagerðarinnar og samstarfsaðila hennar.

Öryggisráð er starfandi hjá Vegagerðinni og hefur það hlutverk að hafa eftirlit með framgangi öryggismála í allri starfseminni. Öryggisráð er leitt af forstjóra.

Öryggisstjóri starfar á skrifstofu forstjóra, leiðir og samræmir málaflokk öryggis og vinnuumhverfis. Öryggisstjóri stuðlar að því að skipulag og framkvæmd öryggis- og vinnuverndarmála sé í samræmi við lög, reglugerðir og stefnu Vegagerðarinnar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ber ábyrgð á því að skipulag og verklag í öryggis- og vinnuverndarmálum sé í samræmi við lög og reglugerðir. 
  • Öryggisstjóri er ráðgjafi og starfsmaður Öryggisráðs.
  • Leiðir stefnumótun, áætlanagerð og markmiðasetningu í öryggis- og vinnuverndarmálum í samráði við Öryggisráð.
  • Mótun, stýring og eftirfylgni verklags og verkefna í öryggis- og vinnuverndarmálum, skýrslugerð og árangursmælingar (KPI). 
  • Umsjón með starfsemi öryggisnefndar í samráði við formann nefndar.
  • Ábyrgð á atvikaskráningagrunni og meðhöndlun skráninga ásamt eftirfylgni á úrbótum.
  • Skipulagning þjálfunar og fræðslu til starfsmanna og stjórnenda í öryggis- og vinnuverndarmálum.
  • Stuðla að virkri öryggis- og vinnuverndarmenningu.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi.
  • Sérhæfð þekking og reynsla af stjórnun öryggis- og vinnuverndarmála.
  • Reynsla af stefnumótun, innleiðingu verklags og markvissri eftirfylgni.
  • Færni til að halda yfirsýn yfir fjölbreytt verkefni. 
  • Hæfni til að miðla upplýsingum á skýran og aðgengilegan hátt.
  • Skipulagshæfni, frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt.
  • Framúrskarandi öryggisvitund, samskiptafærni og umbótasinnuð hugsun.
  • Mjög góð tölvukunnátta.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli.
Advertisement published25. September 2026
Application deadline7. October 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Suðurhraun 3, 210 Garðabær
Type of work
Professions
Job Tags