Þörungaverksmiðjan hf. / Thorverk
Þörungaverksmiðjan hf. hefur verið starfrækt í nærri hálfa öld í sátt við náttúru, landeigendur og yfirvöld. Sjálfbær nýting á klóþangi og hrossaþara í Breiðafirði er grundvöllur fyrir rekstri fyrirtækisins; ekki er tekið meira en vex aftur fram að næsta slætti. Verksmiðjan nýtir jarðhita til að þurrka sjávarfangið sem síðan er malað, stærðarflokkað og selt út um allan heim. Sjálfbær nýting á villtum stórþörungum, lífræn vinnsla og afurðum eru alþjóðlega vottaðar.
Þörungaverksmiðjan er annar stofnenda Þörungamiðstöðvar Íslands og er dyggur bakhjarl hennar. Hún er vaxandi þekkingarsetur um þörunga við Ísland, rannsóknir, kennslu og nýtingu. Þörungaverksmiðjan er einnig virkur hluthafi í Þörungaklaustrinu; fyrirtæki um vöruþróun úr þangi og þara. Vissulega mjög fjölbreytt verkefni í dásamlegri náttúrulegu umhverfi.
Öryggisstjóri
Þörungaverksmiðjan á Reykhólum leitar að framsýnum, metnaðarfullum og árangursdrifnum öryggisstjóra. Leitað er að reyndum aðila með góða samstarfs- og samskiptahæfileika. Öryggisstjóri vinnur að stöðugum umbótum sem tryggja öryggi starfsfólks og eykur þekkingu þess á öryggismálum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Yfirumsjón með öryggis- og vinnuverndarmálum.
- Skapar, viðheldur og er ábyrgur fyrir öryggismenningu.
- Þjálfun og fræðsla fyrir starfsfólk ásamt þróun fræðsluefnis.
- Umsjón með ytri og innri úttektum.
- Kemur að endurbótum á ferlum, verkferlum, verkfærum og vinnuvélum.
- Umsjón með atvikaskráningu, greiningu atvika og eftirfylgni úrbóta.
- Heldur utan um gagnasöfnun og úrvinnslu.
- Viðhald og endurnýjun á öryggis- og gæðahandbókum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi.
- Góð þekking og reynsla á sviði öryggisstjórnunar og straumlínustjórnunar.
- Þekking á uppbyggingu, þróun og stjórnun öryggiskerfa.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Faglegur metnaður og skipulagshæfni.
- Góð íslensku- og enskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
- Góð tölvukunnátta.
Advertisement published5. September 2024
Application deadline22. September 2024
Language skills
IcelandicIntermediate
EnglishIntermediate
Location
Karlsey verksmiðjuh 139663, 380 Reykhólahreppur
Type of work
Professions
Job Tags