
IKEA
Í dag starfa um 450 manns hjá IKEA á Íslandi, í lifandi alþjóðlegu umhverfi.
Þessi stóri samheldni hópur vinnur daglega að framgangi hugmyndafræði IKEA: „Að gera daglegt líf þægilegra fyrir sem flesta“.
Fjölbreytni er lykill að velgengni. Hjá IKEA, fögnum við öllum víddum fjölbreytileikans. Við leggjum áherslu á að skapa vinnuumhverfi þar sem öll eru velkomin, virt, studd og vel metin, sama hver þau eru eða hvaðan þau koma. Við erum fullviss um að sérstaða allra einstaklinga gerir IKEA betri.
Hér í IKEA leggjum við mikla áherslu á jákvæð samskipti á vinnustað og teljum sveigjanleika í starfi og samræmi milli vinnu og einkalífs vera mikilvægan þátt í starfsánægju.
Starfsemi fyrirtækisins býður upp á skapandi og skemmtileg störf og mikla möguleika á að þróast og vaxa í starfi – með jákvæðni að leiðarljósi.

Öryggisfulltrúi IKEA
Staða öryggisfulltrúa er laus til umsóknar. Um fullt starf er að ræða þar sem unnar eru dag- og næturvaktir á 5-5-4 vaktakerfi.
Starfið felst í almennri öryggisgæslu, rýrnunareftirliti og eftirliti með hússtjórnarkerfum. Að auki felst í starfinu móttaka gesta auk tilfallandi starfa sem heyra undir öryggisdeild.
Öryggisdeild IKEA er starfandi allan sólarhringinn, alla daga ársins og því geta vaktir lent á rauðum dögum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Öryggisgæsla (vöruvernd, rýrnunareftirlit)
- Eftirlit með öryggi starfsmanna
- Framfylgni á ákvæðum vinnuverndarlöggjafar
- Eftirlit með öryggiskerfi hússins
- Vinnsla á upplýsingum úr hússtjórnarkerfi
- Skýrslugerð vegna slysa, atburða og uppákomna í húsinu og lóð þess
- Veita fyrstu hjálp sé hennar þörf
- Söltun og mokstur
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af öryggisstörfum kostur
- Þekking á skyndihjálp kostur
- Góð íslensku- og enskukunnátta skilyrði
- Hæfni í mannlegum samskiptum og þjónustulund
- Sjálfstæð vinnubrögð
- Stundvísi, heiðarleiki og áreiðanleiki
- Góð skipulags- og tölvukunnátta
- Bílpróf
- Vinnuvélaréttindi kostur
- Hreint sakavottorð
Fríðindi í starfi
- Samgöngustyrkur fyrir þá sem nýta sér vistvænan og heilsusamlegan samgöngumáta til og frá vinnu.
- Ýmsir viðburðir á vegum fyrirtækisins ásamt virku starfsmannafélagi sem stendur fyrir reglulegum viðburðum.
- Aðgengi að sumarbústað til einkanota.
- Niðurgreiddur heilsusamlegur matur með vegan valkosti.
- Ávexti og hafragrautur í boði.
- Heilsueflingarstyrkur ásamt frírri heilsufarsskoðun og velferðarþjónustu frá utanaðkomandi fagaðila. Hressandi morgunleikfimi tvisvar í viku.
- Aðgengi að námskeiðum og fræðslu til að styrkja persónulega hæfni.
- Skapandi og skemmtileg störf með mikla möguleika á að þróast og vaxa í starfi.
- Skemmtilegir vinnufélagar.
- Afsláttur af IKEA vörum.
Advertisement published22. May 2025
Application deadlineNo deadline
Language skills

Required

Required
Location
Kauptún 4, 210 Garðabær
Type of work
Skills
Clean criminal recordAmbitionWorking under pressure
Professions
Job Tags
Other jobs (2)