Nettó
Nettó
Nettó

Nettó Höfn í Hornafirði leitar að starfsfólki í tvö störf við áfyllingu kvöld/nætur.

Nettó Höfn í Hornafirði leitar að starfsfólki í tvö störf við áfyllingu kvöld/nætur. Um er að ræða starf þar sem vinnutími er að jafnaði frá kl. 20:00–04:00, sex daga vikunnar. Starfið felst fyrst og fremst í áfyllingu og frágangi á vörum að kvöldi og nóttu. Stærstur hluti vinnutímans er eftir lokun verslunar en hluti vaktar getur verið á opnunartíma.

Starfið hentar vel einstaklingi sem er sjálfstæður, skipulagður og vinnur rösklega. Mikilvægt er að geta unnið eftir skipulagi vinnustaðar, forgangsraðað verkefnum og sýnt frumkvæði.

Helstu verkefni og ábyrgð

Áfylling og frágangur á vörum

Framstilling og tiltekt í verslun

Móttaka og frágangur vöru eftir þörfum

Aðstoð við viðskiptavini á opnunartíma

Önnur tilfallandi verkefni í verslun

Menntunar- og hæfniskröfur

Sjálfstæði og ábyrgð í starfi

Skipulögð og vönduð vinnubrögð

Dugnaður og geta til að vinna rösklega

Frumkvæði og geta til að forgangsraða verkefnum

Góð enskukunnátta

Fríðindi í starfi

Heilsustyrkur 

Afsláttarkjör í verslunum Samkaupa

Velferðaþjónusta 

Advertisement published17. September 2026
Application deadline1. October 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Basic skills
Location
Höfn í Hornafirði
Type of work
Professions
Job Tags