Náttúrufræðistofa Kópavogs
Náttúrufræðistofa Kópavogs
Náttúrufræðistofa Kópavogs

Náttúrufræðistofa Kópavogs leitar eftir sérfræðingi

Náttúrufræðistofa Kópavogs óskar að fá til liðs við sig öflugan sérfræðing til að vinna að faglegu safnastarfi á sviði náttúruvísinda.

Náttúrufræðistofa Kópavogs er viðurkennt safn með um 6000 náttúrugripi í safneign sinni. Í starfsemi safnsins er lögð áhersla á að kynna náttúru landsins, umhverfismál og náttúruvísindi í gegnum sýningar, fræðslu, viðburði og útgefið efni. Í safninu er unnið að faglegu innra starfi með skráningu, umsjón og rannsóknum á safneign. Starfsemi safnsins miðar að því að stuðla að náttúrulæsi og bjóða upp óvænt sjónarhorn á umfjöllunarefni sín, þar á meðal með samspili náttúruvísinda við skapandi greinar.

Sérfræðingur á Náttúrufræðistofu Kópavogs mun vinna að samþættingu innra og ytra starfs safnsins. Sérfræðingur leiðir rannsóknir og samstarfsverkefni fyrir hönd safnsins. Hann vinnur að þróun grunnsýningar í samstarfi við starfsteymi og sér um framkvæmd og útfærslu þess. Sérfræðingur tekur þátt í skráningu og umsjón safneignar í samstarfi við verkefnastjóra safneigna. Hann vinnur jafnframt að miðlun í útgefnu efni, á stafrænum miðlum og í fyrirlestraröðum í samstarfi við verkefnastjóra fræðslu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Leiðir rannsóknir og samstarfsverkefni Náttúrufræðistofu Kópavogs.
  • Umsjón og áframhaldandi þróun á grunnsýningu Náttúrufræðistofu Kópavogs.
  • Miðlun í útgefnu efni, fræðaerindum og sýningum.
  • Vinnur í samstarfi við verkefnastjóra fræðslu og viðburða við gerð fræðsluefnis um náttúruvísindi og umhverfismál.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun á sviði náttúruvísinda, safnafræði eða sambærilegu námi sem nýtist í starfi.
  • Skýr og fagleg sýn á mótun og þróun starfsemi Náttúrufræðistofu.
  • Hugmyndaauðgi, frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og metnaður til að ná árangri í starfi.
  • Reynsla af safnastarfi er kostur.
  • Reynsla af rannsóknarstarfi er kostur.
  • Reynsla af miðlun rannsókna í útgáfum, sýningum og viðburðum er kostur.
  • Reynsla af þverfaglegu samstarfi á sviði menningar og náttúruvísinda er kostur.
  • Jákvætt viðmót og lipurð í mannlegum samskiptum.
  • Færni til að rita texta og miðla til ólíkra samfélagshópa.
  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.
Advertisement published30. May 2025
Application deadline15. June 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Very good
Location
Hamraborg 6A, 200 Kópavogur
Type of work
Professions
Job Tags