
Íslyft / Steinbock þjónustan ehf
Íslyft / Steinbock þjónustan er elsta lyftaraþjónustufyrirtæki landsins og stærsti innflytjandi á tækjum og búnaði á Íslandi. Við höfum starfað síðan 1972 og þjónum fyrirtækjum í fiskvinnslu, landbúnaði, verktöku, vöruhúsum, heildsölu, álverum og fleiri greinum.
Hjá okkur vinnur fólk við viðgerðir og þjónustu á verkstæði og hjá viðskiptavinum, við varahluti og lager, sölu og á skrifstofu. Verkefnin eru fjölbreytt og áþreifanleg: tækin sem við seljum og þjónustum halda atvinnulífinu gangandi.
Við leggjum upp úr því að fólk fái ábyrgð, læri á tækin og kerfin okkar og geti vaxið í starfi. Hér skiptir vinnusemi, nákvæmni og vilji til að læra meira máli en titlar.
Höfuðstöðvarnar eru á Kársnesi í Kópavogi og við erum einnig með starfsstöð á Akureyri. Starfsmannafélagið er öflugt og á staðnum eru golfhermir, píluaðstaða, borðtennis og pool-borð.
Íslyft / Steinbock þjónustan hefur verið á lista Creditinfo yfir framúrskarandi fyrirtæki samfellt frá 2010.

Nákvæmur og harðduglegur lagerstarfsmaður óskast!
Óskum eftir að ráða harðduglegan og nákvæman einstakling í lagerteymið okkar á Kársnesi í Kópavogi. Þetta er lagerstarf fyrir þann sem hefur gaman af kerfum: þú vinnur daglega í K8 vöruhúsakerfi og berð ábyrgð á að gögnin séu rétt.
Starfið snýst um að halda lagernum í toppstandi: taka á móti vörum, skrá þær rétt, telja, taka til pantanir og sjá til þess að birgðir í kerfinu stemmi við það sem er til. Mest er unnið með varahluti, en viðkomandi kemur einnig að móttöku og umsýslu á tækjum og búnaði.
Við erum að herða tökin á birgðaskráningu og talningum og viljum fá inn einstakling sem tekur virkan þátt í því.
Við leitum sérstaklega að einstaklingi sem
- Lætur verkin tala og klárar það sem byrjað er á
- Vill hafa hlutina rétta, bæði í hillunni og í kerfinu
- Tileinkar sér tölvukerfi hratt og vinnur skipulega í þeim
- Spyr: „Hvernig má gera þetta einfaldara eða sjálfvirkara?“
- Sér hvað þarf að laga og gengur í það
Það sem við bjóðum
- Framtíðarstarf í fullu starfi hjá traustu fyrirtæki með yfir 50 ára sögu
- Tækifæri til að læra á kerfin okkar og vaxa í starfi
- Við komum þér vel inn í K8 vöruhúsakerfið
- Fjölbreytt verkefni og raunverulega ábyrgð á því að lagerinn sé í lagi
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vörumóttaka: móttaka sendinga, yfirferð á móti pöntunum og fylgiskjölum og skráning í K8 vöruhúsakerfi
- Frágangur vöru á rétta staðsetningu og merkingar
- Tiltekt pantana og varahluta
- Reglulegar talningar, greining frávika og leiðréttingar
- Eftirfylgni með því að birgðastaða í kerfi sé rétt
- Aðstoð við móttöku og umsýslu á tækjum og búnaði
- Skipulag, umgengni og snyrtimennska á lager
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af lagerstörfum er kostur, en áhugi á kerfum og vilji til að læra vega þyngra
- Góð tölvufærni og reynsla af vöruhúsa- eða birgðakerfum
- Reynsla af K8 eða sambærilegu vöruhúsakerfi er mikill kostur
- Mjög gott vinnusiðferði, stundvísi og áreiðanleiki
- Reynsla af DK og lyftararéttindi eru kostur
- Líkamleg geta til lagerstarfa
- Góð íslenskukunnátta, enskukunnátta er kostur
Fríðindi í starfi
- Niðurgreiddur hádegismatur
- Ýmsir viðburðir á vegum fyrirtækisins
- Starfsmannafélag
- Golfhermir
- Píluaðstaða
- Borðtennis og Pool-borð
Advertisement published26. November 2026
Application deadline13. December 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishOptional
Location
Vesturvör 32A, 200 Kópavogur
Type of work
Skills
General computer knowledgeStock managementForklift licensePrecisionIndependence
Professions
Job Tags
Similar jobs (10)

Starfsmaður óskast í vöruhús / Warehouse employee
Lífland ehf.

Warehouse Agent - Innkaupa og varahlutadeild Icelandair
Icelandair

Lagerstarfsmaður og útkeyrsla
Skakkiturn ehf

Lager- og birgðaumsjón
Eykt ehf

Vaktstjóri á Frílager / Bonded Store Duty Manager
NEWREST ICELAND ehf.

Lagerstarfsmaður hjá MAN á Íslandi
Kraftur hf.

Heimsendingar á kvöldin - tímabundið starf
Dropp

Bílstjóri - Lagerstarfsmaður
Fiskikóngurinn ehf.

STARFSMAÐUR Í VÖRUHÚSI
Bako Verslunartækni

Lagerstarf
Ísfell