
Klíníkin Ármúla ehf.
Klíníkin er sérhæfð lækninga- og heilsumiðstöð og er staðsett í Ármúla 9, 108 Reykjavík. Við Klíníkina starfa þrautreyndir sérfræðilæknar og hjúkrunarfræðingar sem öll leggja sig fram við að veita persónulega þjónustu og hafa skjólstæðinga sína ávallt í öndvegi. Markmið Klíníkurinnar er að greina vanda, ráðleggja um leiðir til lausna og framkvæma nauðsynlegar aðgerðir. Samstarf reyndra lækna og hjúkrunarfræðinga með mikla starfsreynslu hérlendis og erlendis tryggir gæði þjónustunnar og öryggi sjúklinga. Aðbúnaður er til fyrirmyndar í Klíníkinni hvort sem um er að ræða læknamóttöku eða á skurðstofum og er mikil áhersla lögð á að tækjabúnaður uppfylli ströngustu kröfur á alþjóðlegan mælikvarða. Hugmyndafræði Klíníkurinnar byggist á teymisvinnu og því að sinna sérþörfum sjúklinga og veita heildarþjónustu frá greiningu, skurðaðgerð og þar til annari meðferð lýkur.
Móttökuritari - Klíníkin Ármúla
Klíníkin Ármúla leitar að jákvæðum og þjónustulunduðum einstaklingi í starf móttökuritara. Við leitum að aðila sem nýtur þess að vinna með fólki og leggur sig fram um að skapa jákvætt andrúmsloft fyrir skjólstæðinga og samstarfsfólk. Starfið er fjölbreytt og krefjandi þar sem móttakan gegnir lykilhlutverki í daglegri starfsemi Klíníkurinnar. Hlýlegt, faglegt og traustvekjandi viðmót er því mikilvægur þáttur í starfinu sem reynir á samskiptahæfni, skipulag og lausnamiðaða nálgun.
Um starfið:
- Starfshlutfall: 100%
- Vinnutími: Virkir dagar á dagvinnutíma.
- Ráðning er hugsuð til lengri tíma
Helstu verkefni og ábyrgð
- Móttaka skjólstæðinga og annarra gesta
- Almenn afgreiðsla og símsvörun.
- Tímabókanir, túlkapantanir og skráning í kerfi.
- Móttaka tilvísana og annarra erinda.
- Reikningagerð og meðhöndlun greiðslukrafna.
- Daglegt uppgjör, skjalavarsla og gagnavinnsla.
- Þátttaka í sameiginlegum verkefnum innanhúss er varða skipulag starfseminnar.
- Ýmis almenn skrifstofustörf.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Rík þjónustulund og mjög góð færni í mannlegum samskiptum.
- Reynsla af sambærilegu starfi er kostur.
- Nákvæm og vönduð vinnubrögð.
- Hæfni til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi.
- Sveigjanleiki og geta til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni.
- Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í rituðu og töluðu máli.
- Góð almenn tölvukunnátta.
- Æskilegt að hafa reynslu af sjúkraskrárkerfunum Sögu og/eða Gagna
Advertisement published4. March 2026
Application deadline15. April 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Ármúli 7, 108 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (4)
Similar jobs (12)

Sumarstarf - Þjónustufulltrúi
Myllan

Lyftarastarf í vöruhúsi - tímabundin tímavinna
Landspítali

Starf móttökuritara á göngudeild Klepps
Landspítali

Service Agent - KEF airport
Avis og Budget

Óskum eftir öflugum liðsauka í móttöku
Vinnuvernd ehf.

Sumarstarf - Fullt starf í Kópavogslaug - Kona
Sumarstörf - Kópavogsbær

Sumarstörf hjá ICS ehf.
ICS ehf

Reception Manager at Flóra Hotels
Flóra Hotels

Starfsmaður í afgreiðslu
Sjóferðir ehf

Þjónustufulltrúi - sumarstarf
Suðurnesjabær

Grundarheimilin óska eftir heilbrigðisgagnafræðing í starf verkefnastjóra.
Grundarheimilin

Alma íbúðafélag, þjónustufulltrúi
Alma íbúðafélag