
Wise lausnir ehf.
Wise er alhliða upplýsingatæknifyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun, ráðgjöf og innleiðingu á breiðu úrvali viðskipta- og rekstrarlausna sem hjálpa fyrirtækjum að skara fram úr, mæta áskorunum og grípa ný tækifæri.
Lausnaframboð okkar samanstendur af hýsingar- og rekstrarþjónustu, öryggislausnum og heildstæðum viðskiptalausnum fyrir fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög.
Hjá Wise starfa tæplega 200 sérfræðingar í Reykjavík, á Akureyri og í Litháen.
Við erum fjölbreyttur hópur fólks sem eigum það sameiginlegt að brenna fyrir upplýsingatækni, nýsköpun og árangri viðskiptavina.
Wise er fjölskylduvænn, lifandi og skemmtilegur vinnustaður. Við leggjum áherslu á hvetjandi starfsumhverfi með markvissri fræðslu og þjálfun, að starfsfólki líði vel í vinnunni og að starfsandi sé eins og best verður á kosið. Jafnframt er boðið upp á samgöngu- og heilsustyrk til starfsmanna.
Fyrirtækið býður upp á samkeppnishæf laun og hlaut jafnlaunavottun 2021 og viðurkenningu FKA Jafnvægisvogarinnar 2022.

Mótaðu framtíð þjónustu hjá Wise: Ert þú okkar nýi þjónustustjóri?
Wise er á spennandi tímamótum og leitum nú að þjónustustjóra sem vill taka sterka þjónustu og gera hana enn betri með skýrri stefnu, samhæfðum ferlum og markvissri þjónustu þróun.
Nýr þjónustustjóri mótar ferla, byggir upp þjónustumenningu og tryggir að viðskiptavinir Wise fái ávallt framúrskarandi þjónustu, sama hvaða lausnir þeir nota.
Helstu verkefni og ábyrgð
Þú berð heildarábyrgð á þjónustuafhendingu Wise og hefur greiðan aðgang að æðstu stjórnendum félagsins.
Helstu áherslur eru:
- Byggja upp og leiða þjónustuupplifun.
- Innleiða og styrkja þjónustuferla.
- Knýja fram stöðugar umbætur á ánægju viðskiptavina.
- Vera brú milli tækniteymis og viðskiptavina.
- Tryggja skýr og fagleg samskipti.
Menntunar- og hæfniskröfur
Hverju við leitum að
- Traust reynsla af IT Service Management og ITIL aðferðafræði.
- Reynsla af því að leiða uppbyggingu á þjónustuupplifun og knýja fram breytingar í þjónustumenningu.
- Hæfni í gagnagreiningu og árangursmælingum.
- Framúrskarandi samskiptafærni sem byggir upp traust bæði hjá viðskiptavinum og innri teymum.
- Hafa yfirsýn og skilgreina forgangsröðun í krefjandi og hröðu starfsumhverfi.
Advertisement published10. February 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
EnglishRequired
IcelandicRequired
Location
Ofanleiti 2, 103 Reykjavík
Type of work
Skills
Designing proceduresImplementing proceduresLeadershipBusiness strategy
Work environment
Professions
Job Tags
Similar jobs (6)

Vaktstjóri þjónustu og upplifunar (e. Service & Experience Manager)
Laugarás Lagoon

Svæðisstjóri Norðurlands
Hreint ehf

Deildarstjóri fyrirtækjaþjónustu
Sýn

Þjónustustjóri í útibúi á Dalvík
Landsbankinn

Hópstjóri þjónustuvers
Auðkenni ehf.

Manager - Landspítali, Ræstingastjóri óskast til starfa hjá iClean við Landspítala
iClean ehf.