
Monkeys & Kokteilbarinn
Monkeys er staðsettur við Klapparstíg 28-30 í Hjartagarðinum. Gengið er inn í hlýlegt, litríkt og spennandi umhverfi þar sem gestir geta notið framandi matar.
Staðurinn er smáréttastaður með mikið úrval framandi rétta sem eru undir áhrifum frá Suður ameríku og Asíu. Mikil áhersla er á gott úrval léttvína í glasatali og þá sér í lagi freyðandi vín frá öllum heimshornum ásamt frábærum kokteilum.
Matargerðin okkar er byggð á hágæða íslensku hráefni með brögðum og áhrifum frá Suður-Ameríku og Asíu. Með því að flétta saman aldagamla asíska eldunartækni og kraftmikil suður amerísk krydd við fyrsta flokks íslenskt hráefni, sköpum við upplifun sem er í senn bragðmikil og framandi.
Mikið úrval er af girnilegum steikum, grilluðum í Josper kolaofninum ásamt ýmis konar fiskréttum og skelfisk. Smáréttir og sushi skipa einnig mikilvægan sess á matseðlinum auk þess sem hann hefur að geyma spennandi grænmetisrétti og ómótstæðilega eftirrétti.
Monkeys leitar að hressum barþjóni
Við leitum að færum og kraftmiklum barþjóni til að ganga til liðs við teymið á Monkeys. Þú verður andlit barsins okkar, blandar frábæra drykki og sérð til þess að öllum gestum líði vel.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Útbúa og bera fram kokteila, vín, bjór og óáfenga drykki af fagmennsku
- Mæla með drykkjum og pörunum fyrir gesti
- Halda barnum hreinum, vel birgðum og skipulögðum, bæði á vakt og eftir lokun
- Taka við pöntunum og greiðslum
- Vinna náið með þjónum og eldhúsi svo þjónustan gangi snurðulaust
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð Íslenskukunnátta er skilyrði ásamt góðri enskukunnáttu
- Reynsla af barþjónustu, helst á annasömum veitingastað eða kokteilbar
- Góð þekking á klassískum kokteilum, sterku áfengi og víni
- Vingjarnlegt og faglegt viðmót og góð samskiptahæfni
- Getua unnið hratt undir álagi
- Vinna á kvöldin, um helgar og á hátíðisdögum
- Lágmarksaldur 20 ár
Advertisement published1. November 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Klapparstígur 28, 101 Reykjavík
Type of work
Skills
Bar servicesPositivityHuman relationsMeticulousness
Professions
Job Tags





