Reykjanesbær
Reykjanesbær
Reykjanesbær

Menntasvið - Talmeinafræðingur

Reykjanesbær leitar að metnaðarfullum talmeinafræðingi til að bætast í öflugan hóp sérfræðinga í skólaþjónustu á skrifstofu menntasviðs. Skólaþjónustan starfar í þverfaglegu og sveigjanlegu starfsumhverfi þar sem samvinna, faglegt starf og farsæld í þágu barna og fjölskyldna þeirra eru í forgrunni.

Starfsfólk Reykjanesbæjar vinnur samkvæmt grunngildum bæjarins, virðingu, eldmóði og framsækni, með það að markmiði að veita íbúum bæjarins framúrskarandi þjónustu á hverjum tíma. Menntastefna sveitarfélagsins, Með opnum hug og gleði í hjarta, endurspeglar skýra sýn þar sem börn eru í forgangi, fjölbreytileiki er styrkur og faglegt menntasamfélag er grundvöllur árangurs.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Athuganir vegna barna með mál- og talmein í leik- og grunnskólum
  • Ráðgjöf vegna nemenda sem nýta óhefðbundin tjáskipti og tjáskiptatækni
  • Fræðsla og ráðgjöf til foreldra og starfsfólks í skóla vegna einstaklinga og/eða hópa
  • Þátttaka í þverfaglegu teymi skólaþjónustu
  • Samstarf við aðra þjónustuveitendur í þágu farsældar barna
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Fullgilt nám í talmeinafræðum og réttindi til að starfa sem talmeinafræðingur á Íslandi
  • Þekking og reynsla í ráðgjöf og athugunum er varða mál- og talmein hjá börnum á leik- og grunnskólaaldri
  • Þekking á óhefðbundnum tjáskiptum og tjáskiptatækni
  • Skipulagshæfni, sjálfstæði og frumkvæði 
  • Góð hæfni í íslensku, töluðu og rituðu máli
  • Jákvætt viðhorf, lausnamiðuð hugsun og leikni í mannlegum samskiptum
  • Hreint sakavottorð 
Fríðindi í starfi
  • Bókasafnskort
  • Gjaldfrjáls aðgangur að menningarhúsum
  • Gjaldfrjáls aðgangur í sund
  • Gjaldfrjáls aðgangur í strætó
Advertisement published1. April 2026
Application deadline17. April 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Grænásbraut 910, 235 Reykjanesbær
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Team work
Professions
Job Tags