Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Meðferðaraðili - Geðheilsumiðstöð barna HH

Hefur þú áhuga á geðheilbrigðisþjónustu við börn og fjölskyldur?

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar að meðferðaraðila til starfa í Ráðgjafar- og meðferðarteymi hjá Geðheilsumiðstöð barna (GMB).

Geðheilsumiðstöð barna veitir 2. stigs heilbrigðisþjónustu á landsvísu fyrir fjölskyldur með börn frá meðgöngu að 18 ára aldri. Miðstöðin sinnir greiningu, ráðgjöf og meðferð vegna geð- og taugaþroskavanda barna og unglinga ásamt því að styðja við tengslamyndun foreldra og barna frá 0-5 ára. Starfshópur GMB er þverfaglegur og vinnur eftir markvissu skipulagi með fagleg gæði að leiðarljósi. Áhersla er á gott viðmót og fjölskyldumiðaða þjónustu. GMB á reglulegt samstarf við þjónustuveitendur víðsvegar um landið og sinnir starfsþjálfun háskólanema á sviðinu.

Um er að ræða 80-100% ótímabundið starf, ráðið er í starfið frá 1. janúar nk. eða eftir nánara samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Ráðgjafar- og meðferðarteymi er þverfaglegt teymi innan GMB sem veitir ráðgjöf og meðferð til barna og ungmenna að 18 ára aldri vegna miðlungs til alvarlegs geðræns vanda. Í teyminu eru m.a. félagsráðgjafar, sálfræðingar, hjúkrunarfræðingar, læknar og fjölskyldufræðingar. Þjónusta teymisins telst til annarrar línu geðheilbrigðisþjónustu. Meðferðaraðili tekur virkan þátt í umbótastarfi og þróun þjónustu.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Starfsleyfi sem heilbrigðisstarfsmaður frá Embætti landlæknis, t.d. iðjuþjálfi, félagsráðgjafi, hjúkrunarfræðingur eða sálfræðingur.

  • Reynsla af meðferðarvinnu er skilyrði

  • Reynsla á sviði þroska-, geð- og hegðunarvanda hjá börnum er æskileg

  • Reynsla af þverfaglegri teymisvinnu er æskileg

  • Hlýlegt viðmót og góð hæfni í mannlegum samskiptum

  • Faglegur metnaður

  • Sjálfstæði, frumkvæði, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð

  • Hæfni til að veita meðferð í flóknum aðstæðum og lausnamiðuð nálgun

  • Áhugi og vilji til að starfa í þverfaglegu teymi

  • Góð almenn tölvukunnátta

  • Góð íslenskukunnátta

  • Góð almenn enskukunnátta

Fríðindi í starfi

Heilsustyrkur 

Samgöngustyrkur

Advertisement published24. November 2026
Application deadline7. December 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Vegmúli 3, 108 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Team work
Work environment
Professions
Job Tags