Efstihjalli
Efstihjalli
Efstihjalli

Matráður óskast í Efstahjalla

Við í leikskólanum Efstahjalla erum að leita að menntuðum matráð. Leikskólinn Efstihjalli er 5 deilda leikskóli með 97 börn.

Við leitum að matráð í 100% stöðu sem myndi sjá um morgunmat, hádegismat og nónhressingu ásamt tilfallandi verkefnum á tillidögum. Matreiða þarf mat frá grunni og gæta að hollustu hans.

Matráður og aðstoðarmatráður sjá um kaffistofu starfsmanna og þvottahús leikskólans.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Framleiðir holla og næringarríka fæðu fyrir börnin
  • Framleiðir mat fyrir þá sem eru með fæðuofnæmi/óþol
  • Gerir matseðla og innkaup
  • Vinnur samkvæmt því skipulagi sem leikskólastjóri ákveður
  • Hefur yfirumsjón með störfum aðstoðarmatráðs
  • Á gott samstarf við börn og aðra starfsmenn leikskólans
  • Sinnir þeim verkefnum er varðar eldhús, þvottahús sem og kaffistofu sem yfirmaður felur honum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Nám í matartækni æskilegt
  • Þekking á framleiðslu og bakstri
  • Ábyrgur, stundvís, sveigjanlegur og jákvæður einstaklingur
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Sjálfstæði, skipulag og metnaður í vinnubrögðum
  • Hreinlæti og snyrtimennska
  • Þekking og meðvitund um næringargildi og hollustu matvæla
  • Þekking á matargerð fyrir börn með bráðaofnæmi og óþol
  • Gott vald á íslenskri tungu skilyrði 
Fríðindi í starfi
  • Stytting vinnuvikunnar
  • Vetrarfrí, jólafrí og frí í dymbilviku
  • Frítt í sundlaugar Kópavogs
Advertisement published3. October 2025
Application deadline17. October 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Efstihjalli 2, 200 Kópavogur
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Independence
Professions
Job Tags