
Kvíslarskóli
Mosfellsbær er sjöunda stærsta bæjarfélag á Íslandi með rúmlega 13.000 íbúa og fer ört stækkandi. Kvíslarskóli var stofnaður haustið 2021 og tekur þar með við nemendum úr eldri árgöngum (7-10 bekkjar) fyrrverandi Varmárskóla.

Matráður óskast
Kvíslarskóli er unglingaskóli fyrir nemendur í 7.-10. bekk og tekur skólastarfið mið af menntastefnu Mosfellsbæjar, Heimurinn er okkar.
Í Kvíslarskóla eru um 350 nemendur og um 60 starfsmenn en skólinn var stofnaður árið 2021 þegar Varmárskóla var skipt í tvo skóla.
Leitað er að metnaðarfullum og jákvæðum matreiðslumeistara með reynslu af starfsemi skólamötuneyta.
Helstu verkefni og ábyrgð
Matseld fyrir nemendur og starfsfólk, innkaup, undirbúningur og frágangur í eldhúsi ásamt öðrum tilfallandi verkefnum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Meistaranám í matreiðslu
- Reynsla af starfsemi skólamötuneyta
- Sjálfstæði, skipulag og metnaður í vinnubrögðum
- Hreinlæti og snyrtimennska
- Þekking og meðvitund um næringargildi og hollustu matvæla
- Þekking og hæfni í matargerð fyrir börn með bráðaofnæmi og óþol
- Stundvísi, sveigjanleiki og jákvæðni
- Mjög góð samskiptahæfni
- Gott vald á íslensku
Advertisement published12. May 2026
Application deadline27. May 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Skólabraut 1A, 270 Mosfellsbær
Type of work
Skills
Cook
Professions
Job Tags

