

Markaðs- og samfélagsstjóri Barböru
Barbara leitar að öflugri, skapandi og sjálfstæðri manneskju til að sjá um markaðs- og samfélagsmál.
Barbara er nýtt fræðslu- og samfélagsverkefni sem hefur það markmið að gera fjármál og fjárfestingar aðgengilegri fyrir almenning. Við leitum að manneskju sem getur hjálpað okkur að koma Barböru á framfæri, byggja upp sterkt samfélag og halda utan um daglega framkvæmd verkefnisins.
Um starfið
Starfið hentar manneskju sem vill vera hluti af spennandi uppbyggingu og hefur áhuga á að taka virkan þátt í að móta rödd, ímynd og samfélag Barböru.
Þetta er ekki hefðbundið 9–5 starf. Við leitum að manneskju sem hefur frumkvæði, orku og metnað til að taka þátt í verkefni sem getur vaxið hratt.
Áhugasamir sendi ferilskrá og stutta kynningu á sér, reynslu sinni og af hverju Barbara höfðar til þeirra.
- sjá um samfélagsmiðla Barböru
- búa til og birta efni fyrir Instagram, TikTok, LinkedIn og aðra miðla
- taka þátt í framleiðslu á hljóðvarpi og myndbandsefni
- halda utan um skráningar á námskeið og viðburði
- fylgja eftir þátttakendum fyrir og eftir námskeið
- taka þátt í uppbyggingu Barböru-samfélagsins
- hugsa skapandi leiðir til að ná til nýrra þátttakenda
- aðstoða við skipulagningu námskeiða, viðburða og fræðslu
- skrifa texta, auglýsingar og kynningarefni á góðri íslensku
- kann vel á samfélagsmiðla
- hefur gott auga fyrir efni og framsetningu
- getur hugsað út fyrir boxið
- er sjálfstæð, drífandi og lausnamiðuð
- skrifar góða íslensku
- hefur áhuga á fjármálum, samfélagi og fræðslu
- þolir hraða uppbyggingu, óreglulegan vinnutíma og mikla vinnu þegar mikið er að gera
- er tilbúin að taka þátt í að byggja eitthvað nýtt frá grunni
Reynsla af hlaðvarpsgerð, myndbandsvinnslu, samfélagsmiðlum, markaðssetningu eða viðburðahaldi er mikill kostur.
Icelandic










