Lögreglustjórinn á Suðurnesjum
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum

Mannauðsstjóri - Lögreglustjórinn á Suðurnesjum

Við embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum er laus til umsóknar staða mannauðsstjóra. Við leitum að drífandi og framsýnum einstaklingi í spennandi og krefjandi starfsumhverfi. Mannauðsstjóri ber ábyrgð á og leiðir framkvæmd mannauðsmála innan embættisins í umboði lögreglustjóra og situr í yfirstjórn embættisins. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Lögreglan á Suðurnesjum er framsækin þjónustustofnun þar sem áhersla er lögð á mannauð, fagmennsku og traust. Verkefni embættisins eru fjölbreytt og áhersla er lögð á góða þjónustu við nærsamfélagið og aðra sem fara um umdæmið, öfluga löggæslu, almannavarnir og að tryggja lögmæta umferð um landamæri Íslands. Hjá embættinu starfa um 220 manns í fjölbreyttum og krefjandi störfum á þremur starfsstöðvum.

Gildi embættisins eru fagmennska, heiðarleiki og traust.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Fagleg forysta í mannauðsmálum embættisins

  • Þróun mannauðsstefnu og eftirfylgni hennar

  • Þróun starfsumhverfis í anda stefnu embættisins

  • Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur og starfsfólk

  • Umsjón, undirbúningur og eftirfylgni starfsmannasamtala

  • Ábyrgð á helstu mannauðsferlum, gerð starfagreininga og starfslýsinga

  • Yfirumsjón með ráðningum, móttaka nýs starfsfólks, þjálfun, starfsþróun og starfslokum

  • Túlkun kjara- og stofnanasamninga, launasetning og yfirumsjón launavinnslu

  • Samskipti við stéttarfélög, framkvæmd kjarasamninga, réttindamál og aðbúnaður

  • Umsjón með gæðamálum á sviði mannauðsmála

  • Seta í yfirstjórn embættisins og þátttaka í stefnumótun

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólagráða sem nýtist í starfi auk framhaldsmenntunar á sviði mannauðsstjórnunar eða sambærilegrar menntunar

  • Yfirgripsmikil þekking og reynsla af mannauðsmálum

  • Þekking eða reynsla af opinberri stjórnsýslu og vinnurétti

  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni

  • Mjög góð þjónustulund, jákvætt viðhorf og sveigjanleiki

  • Leiðtogahæfni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi

  • Árangurs- og lausnamiðuð hugsun

  • Þekking og reynsla af að leiða breytingar

  • Skipulagshæfni, nákvæmni og öguð vinnubrögð

  • Mjög góð almenn tölvukunnátta er nauðsynleg og þekking á helstu mannauðskerfum ríkisins er kostur
  • Gott vald á íslensku og hæfni til að miðla upplýsingum í rituðu og töluðu máli

Advertisement published10. November 2026
Application deadline20. November 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Brekkustígur 39, 260 Reykjanesbær
Type of work
Professions
Job Tags