Dómsmálaráðuneytið
Dómsmálaráðuneytið
Dómsmálaráðuneytið

Mannauðsstjóri dómsmálaráðuneytisins

Dómsmálaráðuneytið óskar eftir að ráða mannauðsstjóra á skrifstofu fjármála og reksturs.

Leitað er að drífandi einstaklingi sem hefur áhuga á fólki, umbótum og býr yfir hæfni til að leiða mörg fjölbreytt og krefjandi verkefni hverju sinni.

Í dómsmálaráðuneytinu starfa um 65 starfsmenn að fjölbreyttum og krefjandi verkefnum. Hópurinn er samhentur og er áhersla lögð á góðan starfsanda, samvinnu og árangur. Ráðuneytið er fjölskylduvænn vinnustaður þar sem lögð er áhersla á samvinnu og góðan starfsanda í samræmi við mannauðs- og viðverustefnu Stjórnarráðsins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þróun og framkvæmd mannauðsstefnu

  • Ráðgjöf til stjórnenda og starfsmanna

  • Umsjón með ráðningum og móttöku nýs starfsfólks

  • Skipulagning fræðslu og þjálfunar

  • Þróun og skipulagning, teymisvinnu og stuðningur teyma til árangurs

  • Þróun jafnlaunakerfis og framkvæmd jafnlaunagreininga

  • Þróun starfsumhverfis og menningar vinnustaðarins

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun æskileg

  • Þekking og marktæk reynsla á sviði mannauðsmála

  • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur

  • Áhugi á fólki, jákvæðni og framúrskarandi hæfni í samskiptum

  • Reynsla af umbótaverkefnum og breytingastjórnun er kostur

  • Sjálfstæði, frumkvæði og metnaður til að ná árangri

  • Gott vald á íslensku í rituðu og mæltu máli

Advertisement published23. April 2025
Application deadline7. May 2025
Language skills
No specific language requirements
Location
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags