

Lyfjafræðingur - SA Lyfjaskömmtun
Lyf og heilsa óskar eftir öflugum lyfjafræðingi til starfa í SA Lyfjaskömmtun. Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi sem hefur góða faglega þekkingu og ríka þjónustulund. Innan einingarinnar starfar samheldinn og metnaðarfullur hópur þar sem áhersla er lögð á góðan starfsanda og framúrskarandi þjónustu við viðskiptavini.
Um er að ræða fullt starf með vinnutíma kl. 8:00-16:00
Starfssvið:
Fagleg ábyrgð á afgreiðslu lyfja samkvæmt lögum og reglugerðum um lyfsölu.
Fagleg ábyrgð á vélskömmtun lyfja samkvæmt lögum og reglugerð um skömmtun lyfja.
Samskipti við heilbrigðisstarfsfólk og stofnanir.
Þátttaka í mótun verklags og umbótaverkefnum.
Hæfniskröfur:
- Háskólapróf í lyfjafræði og gilt starfsleyfi
- Nákvæm vinnubrögð
- Brennandi áhugi á þjónustu
- Góð samskiptahæfni og hæfni til að vinna í hóp
Um framtíðarstarf er að ræða.
Nánari upplýsingar veitir Hera Jóhannsdóttir faglegur forstöðumaður ([email protected]) eða Fríður Skeggjadóttir mannauðs- og gæðastjóri ([email protected])
Lyf og heilsa er framsækið þjónustufyrirtæki með starfsemi víðsvegar um landið. Fyrirtækið leggur metnað sinn í að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustu á sviði heilsu, heilbrigði og lífsgæða.
Icelandic