Lyfja
Lyfja
Lyfja

Lyfja Selfossi - þjónusta og ráðgjöf

Við leitum að sjálfstæðum og skipulögðum starfsmanni með ríka þjónustulund í sölu- og afgreiðslustarf í Lyfju Selfossi. Starfið felst í að veita almenna ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum og að tryggja góða þjónustuupplifun.

Hlutverk og ábyrgð:

  • Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum
  • Þjónusta og almenn afgreiðslustörf
  • Áfyllingar í verslun
  • Afhending lyfja gegn lyfseðli

Hvaða hæfni þarft þú að hafa?

  • Ríka þjónustulund og gott viðmót
  • Áhuga á mannlegum samskiptum
  • Áhuga á heilsu og vellíðan
  • Reynsla af verslunarstörfum er skilyrði
  • Reynsla af störfum í apóteki er kostur

Starfið:

Um er að ræða 70-80% starfshlutfall og vinnutími er samkvæmt samkomulagi á opnunartíma verslunar.

Umsækjandi þarf að hafa ágæta íslensku- og enskukunnáttu, hafa náð 18 ára aldri og geta hafið störf í ágúst.

Hvers vegna Lyfja?

Lyfja er leiðandi fyrirtæki í íslenskri heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að auka lífsgæði og efla heilsu. Við rekum 42 verslanir hringinn í kringum landið auk Lyfju Heyrnar og lyfjaskömmtunar. Hjá okkur starfar öflugur hópur heilbrigðismenntaðs og sérþjálfaðs starfsfólks sem styður við viðskiptavini í þeirra heilsueflingu, vinnur að vellíðan og tryggir lyfjaöryggi. Við leggjum áherslu á faglega og hlýlega þjónustu og stöðuga nýsköpun.

Við leggjum okkur fram um að skapa vinnuumhverfi þar sem starfsfólk upplifir jákvæðan starfsanda, fær tækifæri til að þróast í starfi og nýtir hæfileika sína til fulls. Við bjóðum upp á öfluga fræðslu og leggjum mikla áherslu á gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Starfsfólk Lyfju nýtur góðra kjara á vörum og þjónustu hjá ELKO, Krónunni, Lyfju og N1, sem öll eru hluti af Festi hf.

Nánari upplýsingar veitir Auður Hlín Ólafsdóttir, lyfsali í síma 482-3000 eða á [email protected]

Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.

Advertisement published11. June 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Austurvegur 44, 800 Selfoss
Type of work
Work environment
Professions
Job Tags