

Lögfræðingur á sviði fasteignamála
VILT ÞÚ STARFA Á VINNUSTAÐ SEM LEGGUR ÁHERSLU Á FRAMÚRSKARANDI ÞJÓNUSTU OG ÁRANGURSDRIFIÐ VINNUUMHVERFI?
HMS vinnur að undirbúningi á breytingum á fasteignamati stórra og flókinna mannvirkja á Íslandi svo sem atvinnuhúsnæðis og orkumannvirkja í samræmi við áherslur stjórnvalda. HMS fer með yfirstjórn fasteignaskráningar á Íslandi en fyrirhuguð er endurskoðun á lögum nr. 6/2001, um skráningu, merki og mat fasteigna.
Við leitum að metnaðarfullum lögfræðingi í teymi fasteignamats og skráningar. Fram undan eru umfangsmikil verkefni sem m.a. fela í sér þróun nýs matskerfis, endurskoðun matsaðferða og flókinna lögfræðilegra úrlausna.
Starfið felur í sér fjölbreytt lögfræðileg verkefni á fasteignamálum, þar á meðal ráðgjöf og úrlausn álitaefna er varða skráningu fasteigna og framkvæmd fasteigna- og brunabótamats. Lögfræðingurinn tekur jafnframt þátt í þróun laga, reglugerða sem snerta málaflokk sviðsins.
- Lagaleg ráðgjöf og úrlausn álitaefna á sviði fasteignaréttar
- Undirbúningur og meðferð stjórnvaldsákvarðana og annarra stjórnsýslumála
- Gerð lögfræðilegra álita, umsagna og leiðbeininga vegna málefna á fasteignasviði
- Þátttaka í þróun laga, reglugerða, verklags og leiðbeininga
- Ráðgjöf og stuðningur við starfsfólk og stjórnendur vegna lögfræðilegra álitaefna
- Samskipti og samstarf við stjórnvöld, sveitarfélög og aðra hagaðila vegna málefna á fasteignasviði
- Embættis- eða meistarapróf í lögfræði
- Lögfræðileg þekking á fasteigna- og eignarrétti og reynsla á því sviði er æskileg
- Þekking á stjórnsýslurétti er kostur
- Góð greiningar- og skipulagshæfni og reynsla af umsjón verkefna
- Frumkvæði, drifkraftur, sjálfstæði og vönduð vinnubrögð
- Góð samskipta- og samstarfshæfni, jákvætt og lausnamiðað viðhorf
- Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
Icelandic



