Lögfræðingur á sviði samninga- og félagaréttar
Deloitte Legal er samstarfsaðili Deloitte sem er leiðandi þjónustuveitandi á sviði endurskoðunar og reikningsskila, upplýsingatækniráðgjafar, fjármálaráðgjafar, áhætturáðgjafar og tengdrar þjónustu. Hjá Deloitte á alþjóðavísu starfa um 450.000 sérfræðingar í yfir 150 löndum, þar af um yfir 2.000 lögfræðingar sem stefna saman að því að veita ávallt framúrskarandi þjónustu. Hjá Deloitte Legal á Íslandi starfa hátt í 20 lögmenn, lögfræðingar og sérfræðingar.
Deloitte Legal leitar að áhugasömum og metnaðarfullum lögfræðingi í öflugt teymi félagsins. Deloitte Legal er framsækin og alþjóðleg lögmannsstofa sem þjónustar fjölbreyttan hóp fyrirtækja í margvíslegum atvinnugreinum á öllum helstu sviðum fyrirtækjalögfræði m.a. í samstarfi við aðildarfélög Deloitte um allan heim. Leitað er að einstaklingi til að starfa á sviði samninga- og félagaréttar, þ.m.t. vegna ráðgjafar við stærri og smærri fyrirtæki, kaupa og sölu fyrirtækja, fjármögnunar og endurskipulagningar.
-
Lögfræðiráðgjöf og skjalagerð á sviði samninga- og félagaréttar.
-
Lögfræðiráðgjöf við stór sem smá fyrirtæki.
-
Stuðningur við markaðssókn félagsins.
-
Samvinna með öðrum ráðgjafateymum, hér heima og erlendis.
-
Embættis- eða meistarapróf í lögfræði.
-
Að lágmarki þriggja ára reynsla af lögfræðistörfum á sviði samninga- og félagaréttar og ráðgjafar við fyrirtæki.
-
Lestur og skilningur ársreikninga er ákjósanlegur.
-
Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
-
Frumkvæði og lausnamiðuð hugsun.
-
Mjög góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði og geta til að tjá sig, í ræðu og riti.