Útlendingastofnun
Útlendingastofnun
Útlendingastofnun

Lögfræðingur

Útlendingastofnun leitar að kraftmiklum lögfræðingi til starfa við afgreiðslu umsókna hjá stofnuninni. Verksvið lögfræðings er fjölbreytt t.a.m. afgreiðsla umsókna, samskipti við innlend og erlend stjórnvöld, viðtöl við umsækjendur og önnur tilfallandi verkefni. Lögfræðingur heyrir undir teymisstjóra.

Útlendingastofnun er spennandi vinnustaður á fleygiferð í stafrænni vegferð. Hjá stofnuninni starfar um 110 manna samhentur hópur á fjórum sviðum. Umfangsmesti þátturinn í starfsemi stofnunarinnar er útgáfa dvalarleyfa. Útlendingastofnun afgreiðir umsóknir um dvalarleyfi, hvort sem um er að ræða dvalarleyfi á grundvelli atvinnuþátttöku, fjölskyldusameiningar, námsvistar eða vistráðningar. Þá afgreiðir stofnunin einnig vegabréfsáritanir, umsóknir um ríkisborgararétt og umsóknir um alþjóðlega vernd. Lögð er rík áhersla á að vinnustaðurinn sé fjölskylduvænn og að starfsandi sé til fyrirmyndar. Boðið er upp á góða vinnuaðstöðu, sveigjanlegan vinnutíma og kost á fjarvinnu. Stofnunin hefur undanfarin ár tekið þátt í verkefninu um styttingu vinnuvikunnar og er miðað við 36 stunda vinnuviku hjá öllu starfsfólki.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Úrvinnsla umsókna og ritun ákvarðana
  • Þátttaka í teymisvinnu
  • Viðtöl við umsækjendur
  • Samskipti við innlend og erlend stjórnvöld
  • Þátttaka í gerð og þróun verkferla
  • Starfa í samræmi við stefnur og markmið stofnunarinnar
Menntunar- og hæfniskröfur
  • BA gráða í lögfræði ásamt meistaragráðu í lögfræði eða embættispróf í lögfræði
  • Reynsla og þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur
  • Reynsla og þekking á sviði útlendingaréttar og flóttamannaréttar er kostur
  • Mjög góð færni í mannlegum samskiptum og þjónustulund
  • Mjög góð almenn tölvukunnátta
  • Mjög góð kunnátta í íslensku og ensku í ræðu og riti
  • Áhugi á stafrænum lausnum og þróun verkferla
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
Advertisement published3. October 2024
Application deadline21. October 2024
Language skills
IcelandicIcelandicIntermediate
Location
Bæjarhraun 18, 220 Hafnarfjörður
Dalvegur 18, 201 Kópavogur
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.Public administrationPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Customer service
Work environment
Professions
Job Tags