JBT Marel
JBT Marel
JBT Marel

Liðsfélagi í suðu og samsetningu hátæknibúnaðar

JBT Marel leitar að kraftmiklum og jákvæðum liðsfélaga til starfa við rafsuðu og samsetningu á fjölbreyttum tækjabúnaði.

Unnið er í sjálfstæðum teymum sem samanstanda af 10-20 einstaklingum á öllum aldri og kynjum og bera þau sameiginlega ábyrgð á að ljúka framleiðslu hverrar vöru. Allt nýtt starfsfólk fær viðeigandi þjálfun.

Við bjóðum upp á fyrsta flokks starfsumhverfi þar sem öryggi, góð liðsheild, samvinna og stöðugar umbætur eru í fyrirrúmi. Framleiðslan í JBT Marel í Garðabæ sérhæfir sig í stuðningi við vöruþróun og framleiðslu á sérhönnuðum verkefnum fyrir okkar viðskiptavini.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Fjölbreytt smíði úr ryðfríu stáli
  • Samsetningu tækja og búnaðar
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Áhugi á rafsuðu (TIG) er skilyrði
  • Reynsla af rafsuðu er mikill kostur
  • Sveinspróf eða haldbær reynsla í málmiðngreinum (nemar koma til greina)
  • Góð íslenskukunnátta og/eða enskukunnátta í töluðu og rituðu máli
  • Tölvuþekking og áhugi á tækniþróun í iðnaði
  • Góð færni í samskiptum og áhugi á teymisvinnu
  • Samviskusemi, metnaður og góð öryggisvitund
  • Jákvæð og lausnamiðuð vinnubrögð
  • Áhugi á umbótastarfi (stöðugum umbótum)
Advertisement published30. October 2026
Application deadline15. November 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Austurhraun 9, 210 Garðabær
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.PrecisionPathCreated with Sketch.Conscientious
Professions
Job Tags